Gamla testamentiðLögmálið
Þér skuluð eigi gjöra yður falsguði, né heldur reisa yður skurðgoð eða merkissteina, og eigi setja upp myndasteina í landi yðar, til þess að tilbiðja hjá þeim; því að eg er Drottinn, Guð yðar.
Mína hvíldardaga skuluð þér halda og fyrir mínum helgidómi lotningu bera; eg er Drottinn.
Ef þér breytið eftir mínum setningum og varðveitið mínar skipanir og haldið þær,
þá skal eg jafnan senda yður regn á réttum tíma og landið mun gefa ávöxt sinn og trén á mörkinni bera aldin sín.
Skal þá ná saman hjá yður þresking og vínberjatekja, og vinberjatekja og sáning; og þér skuluð eta yður sadda af brauði og búa öruggir í landi yðar.
Og eg vil gefa frið í landinu, og þér skuluð leggjast til hvíldar og enginn skal hræða yður; óarga dýrum vil eg eyða úr landinu og sverð skal ekki fara um land yðvart.
Og þér skuluð elta óvini yðar og frammi fyrir yður skulu þeir fyrir sverði hníga.
Og fimm af yður skulu elta hundrað, og hundrað af yður skulu elta tíu þúsundir, og óvinir yðar skulu frammi fyrir yður fyrir sverði hníga.
Og eg vil snúa mér til yðar og gjöra yður frjósama og margfalda yður, og eg vil gjöra sáttmála minn við yður.
Og þér munuð eta fyrnt kom, gamlan forða, og þér munuð bera fyrnda komið út fyrir hinu nýja.
Og eg mun reisa búð mína meðal yðar og sál mín skal ekki hafa óbeit á yður.
Og eg mun ganga meðal yðar og vera Guð yðar, og þér skuluð vera mín þjóð.
Eg er Drottinn, Guð yðar, sem leiddi yður út af Egiptalandi, til þess að þér væruð eigi þrælar þeirra; og eg braut sundur ok-stengur yðar og lét yður ganga eina.
En ef þér hlýðið mér ekki og haldið ekki allar þessar skipanir,
og ef þér hafnið setningum mínum og sál yðar hefir óbeit á dómum mínum, svo að þér haldið ekki allar skipanir mínar, en rjúfið sáttmála minn,
þá vil eg gjöra yður þetta: Eg vil vitja yðar með skelfuigu, tæringu og köldu, svo að augun slokna og lífið fjarar út. Og þér skuluð sá sæði yðar til einskis, því að óvinir yðar skulu eta það.
Og eg vil snúa augliti mínu gegn yður og þér skuluð bíða ósigur fyrir óvinum yðar; og fjandmenn yðar skulu drotna yfir yður og þér Skuluð flýja, þótt enginn elti yður.
En ef þér viljið þá enn ekki hlýða mér, þá vil eg enn refsa yður sjö sinnum fyrir syndir yðar.
Og eg vil brjóta ofurdramb yðar; og eg vil gjöra himininn yfir yður sem járn og land yðar sem eir.
Þá mun kraftur yðar eyðast til ónýtis; land yðar skal eigi gefa ávöxt sinn og trén á jörðunni eigi bera aldin sín.
Og ef þér gangið í gegn mér og viljið ekki hlýða mér, þá vil eg enn slá yður sjö sinnum, eins og syndir yðar eru til.
Og eg vil hleypa dýrum merkurinnar inn á meðal yðar og þau skulu gjöra yður barnlausa, drepa fénað yðar og gjöra yður fámenna; og vegir yðar skulu verða auðir.
Og ef þér skipist ekki við þessa tyftun mína, heldur gangið í gegn mér,
þá vil eg einnig ganga gegn yður; þá vil eg einnig slá yður sjö sinnum fyrir syndir yðar.
Og eg vil láta sverð koma yfir yður, er hefna skal sáttmálans; munuð þér þá þyrpast inn í borgir yðar, en eg vil senda drepsótt meðal yðar og þér skuluð seldir í óvina hendur.
Þá er eg hrýt staf brauðsins fyrir yður, munu tíu konur haka yður brauð í einum ofni og færa yður brauðið aftur eftir vigt; og þér munuð eta og ekki verða mettir.
Og ef þér hlýðið mér eigi þrátt fyrir þetta og gangið í gegn mér,
þá vil eg einnig ganga í gegn yður með þungri reiði og refsa yður sjö sinnum fyrir syndir yðar.
Og þér skuluð eta hold sona yðar, og hold dætra yðar skuluð þér eta.
Og eg vil leggja fórnarhæðir yðar í eyði og kollvarpa sólsúlum yðar og kasta hræjum rðar ofan á búkana af skurðgoðum yðar, og sálu minni mun bjóða við yður.
log eg vil leggja borgir yðar í rústir og eyða helgidóma yðar og ekki kenna þægilegan ilm af fórnum yðar.
Og eg vil eyða landið, svo að óvinum yðar, sem í því búa, skal ofbjóða.
En yður vil eg tvístra meðal þjóðanna og bregða sverði á eftir yður; og land yðar skal verða auðn og borgir yðar rústir.
Þá skal landið fá hvíldarár sín bætt upp alla þá stund, sem það er í eyði og þér eruð í landi óvina yðar; þá skal landið hvílast og bæta upp hvíldarár sín.
Alla þá stund, sem það er í eyði, skal það njóta hvíldar, þeirrar hvíldar, sem það eigi naut á hvíldarárum yðar, er þér bjugguð í því.
Og þá af yður, sem eftir verða, vil eg gjöra svo huglausa í löndum óvina þeirra, að þyturinn af fjúkandi laufblaði skal reka þá á flótta og þeir flýja eins og menn flýja undan sverði; og þeir skulu falla, þó að enginn elti.
Og þeir skulu hrasa hver um annan, eins og flýja skyldi undan sverði, þó að enginn elti; og þér skuluð eigi fá staðist fyrir óvinum yðar,
Og þér skuluð farast meðal þjóðanna og land óvina yðar skal upp eta yður.
Og þeir af yður, sem eftir verða, skulu fyrir sakir misgjörðar sinnar veslast upp í löndum óvina yðar, og þeir skulu veslast upp sakir misgjörða feðra sinna, eins og þeir.
Þá munu þeir játa misgjörð sína og misgjörð feðra sinna, er þeir frömdu með því að rjúfa trygðir við mig, og hversu þeir hafa gengið í gegn mér
fyrir því gekk eg og í gegn þeim og flutti þá í land óvina þeirra; já, þá mun óumskorið hjarta þeirra auðmýkja sig og þeir fá misgjörð sína bætta upp.
Og þá vil eg minnast sáttmála míns við Jakob; og sáttmála míns við Ísak og sáttmála míns við Abraham vil eg einnig minnast; og landsins vil eg minnast.
Og landið skal verða yfirgefið af þeim og fá hvíldarár sín bætt upp, meðan það er í eyði og þeir eru á brottu; og þeir skulu fá misgjörð sína bætta upp fyrir þá sök og vegna þess, að þeir höfnuðu lögum mínum og sál þeirra hafði óbeit á setningum mínum.
En jafnvel þá, er þeir eru í landi óvina sinna, hafna eg þeim ekki og býður mér ekki við þeim, svo að eg vilji aleyða þeim og rjúfa þannig sáttmála minn við þá; því að eg er Drottinn, Guð þeirra.
Og sökum þeirra vil eg minnast sáttmálans við forfeður þeirra, er eg leiddi út af Egiptalandi í augsýn þjóðanna, til þess að vera Guð þeirra; eg er Drottinn.
Þetta eru setningar þær, ákvæði og lög, sem Drottinn setti milli sín og Ísraelsmanna á Sínaí-fjalli fyrir Móse.