Speki Salómons 1Krans-útgáfa

Speki Salómons 1

Elskið réttlæti, þér sem dæmið jörðina. Hugsið um Drottin í góðleika og leitið hans í einfeldni hjartans.

Því að hann finnst þeim, sem eigi freista hans, og hann birtir sig þeim, sem trúa á hann.

Því að rangsnúnar hugsanir skilja frá Guði, og máttur hans ávítar hina óvitru, þegar hann er reyndur.

Því að spekin gengur eigi inn í illgjarna sál né býr í líkama, sem syndum er undirgefinn.

Því að heilagur andi agans flýr svikara og dregur sig burt frá hugsunum, sem skynlausar eru, og hann mun eigi við haldast, þegar ranglæti kemur inn.

Því að andi spekinnar er velviljaður, og hann mun eigi sýkna rógberann af vörum hans, því að Guð er vottur nýrna hans og sannur rannsakari hjarta hans og heyrandi tungu hans.

Því að andi Drottins hefur fyllt allan heiminn, og hann, sem alt umlykur, hefur þekking á röddinni.

Fyrir því getur sá eigi leynst, sem talar rangláta hluti, og hinn refsandi dómur mun eigi fram hjá honum ganga.

Því að rannsókn mun gjörð verða á hugsunum hins óguðlega, og hljómur orða hans mun koma til Guðs til refsingar misgjörðum hans.

Því að eyra vandlætingarinnar heyrir alla hluti, og gnýr möglunarinnar mun eigi leynast.

Varðveitið yður því frá mögli, sem ekkert gagnar, og haldið tungu yðar frá rógi, því að myrkt orð fer eigi til einskis, og munnurinn, sem lýgur, deyðir sálina.

Leitið eigi dauðans í villu lífs yðar, né kallið yfir yður glötun með verkum handa yðar.

Því að Guð gjörði eigi dauðann, og eigi hefur hann unun af glötun hinna lifandi.

Því að hann skapaði alla hluti, að þeir mættu vera til, og hann gjörði þjóðir jarðarinnar til heilsu, og ekkert eyðandi eitur er í þeim, né ríki heljar á jörðunni.

Því að réttlætið er ævarandi og ódauðlegt.

En hinir óguðlegu hafa kallað dauðann til sín með verkum og orðum, og með því að telja hann vin sinn hafa þeir fallið frá og gjört sáttmála við hann, því að þeir eru verðir þess að vera hans hlutskipti.