Síraksbók 1Krans-útgáfa

Síraksbók 1

Öll speki er frá Drottni Guði og hefur ávallt með honum verið og er fyrir allan tíma.

Hver hefur talið sand hafsins og dropa regnsins og daga heimsins? Hver hefur mælt hæð himinsins og breidd jarðarinnar og dýpt undirdjúpsins?

Hver hefur rannsakað speki Guðs, sem á undan öllu fer?

Spekin var sköpuð á undan öllum hlutum, og skilningur hyggindanna frá eilífð.

Orð Guðs í hæðum er uppspretta spekinnar, og vegir hennar eru eilíf boðorð.

Hverjum hefur rót spekinnar verið opinberuð, og hver hefur þekkt hin vitru ráð hennar?

Hverjum hefur agi spekinnar verið opinberaður og birtur? Og hver hefur skilið margfeldni spora hennar?

Einn er hinn hæsti skapari, almáttugur og voldugur konungur og mjög óttalegur, sem situr í hásæti sínu og er Guð yfirráðanna.

Hann skapaði hana í heilögum anda og sá hana og taldi hana og mældi hana.

Og hann úthellti henni yfir öll verk sín og yfir alt hold eftir gjöf sinni og hefur gefið hana þeim, sem hann elska.

Ótti Drottins er heiður og dýrð og gleði og kóróna fagnaðar.

Ótti Drottins mun gleðja hjartað og gefa gleði og fögnuð og langa lífdaga.

Þeim, sem óttast Drottin, mun vel farnast að lokum, og á dauðadegi sínum mun hann blessaður verða.

Kærleikur til Guðs er heiðvirð speki.

Og þeir, sem hún birtir sig, elska hana við sýn hennar og við þekking á hinum miklu verkum hennar.

Ótti Drottins er upphaf spekinnar, og hann var skapaður með hinum trúuðu í móðurkviði; hann gengur með útvöldum konum og þekkist með hinum réttlátu og trúuðu.

Ótti Drottins er guðrækni þekkingarinnar.

Guðrækni mun varðveita og réttlæta hjartað; hún mun gefa gleði og fögnuð.

Vel mun farnast þeim, sem óttast Drottin, og á dögum endaloka sinna mun hann blessaður verða.

Að óttast Guð er fylling spekinnar, og fyllingin er af ávöxtum hennar.

Hún mun fylla alt hús sitt af gnægð sinni og forðabúrin af fjársjóðum sínum.

Ótti Drottins er kóróna spekinnar og fyllir upp frið og ávöxt hjálpræðisins,

og hann hefur séð hana og talið hana; en hvort tveggja eru gjafir Guðs.

Spekin mun útbýta þekkingu og skilningi hyggindanna og upp hefja dýrð þeirra, sem henni halda.

Rót spekinnar er að óttast Drottin, og greinar hennar eru langlífar.

Í fjársjóðum spekinnar er skilningur og guðrækni þekkingarinnar, en syndurum er spekin andstyggð.

Ótti Drottins rekur burt synd,

því að sá, sem óttalaus er, getur eigi réttlættur orðið, því að æði stórlætis hans er honum til falls.

Þolinmóður maður mun um stund þola, og síðan mun gleðin honum aftur veitt verða.

Góður skilningur mun um stund hylja orð sín, og varir margra munu kunngjöra speki hans.

Í fjársjóðum spekinnar er merking agans,

en syndaranum er tilbeiðsla Guðs andstyggð.

Sonur, ef þú þráir speki, þá haltu réttlæti, og Guð mun gefa þér hana.

Því að ótti Drottins er speki og agi, og það, sem honum er þóknanlegt,

er trú og hógværð; og hann mun fylla fjársjóði sína.

Ver eigi vantrúaður á ótta Drottins og kom eigi til hans með tvöföldu hjarta.

Ver eigi hræsnari í augsýn manna, og lát varir þínar eigi verða þér að hrösunarhellu.

Vak yfir þeim, svo að þú fallir eigi og leiðir vansæmd yfir sál þína

og Guð opinberi leyndarmál þín og steypi þér niður mitt í söfnuðinum,

af því að þú komst óguðlega til Drottins og hjarta þitt er fullt lymsku og svika.