Gamla testamentiðSaga
Davíð kannaði nú liðið, sem með honum var, og setti yfir þá þúsundhöfðingja og hundraðshöfðingja.
Og Davíð skifti liðinu í þrent; var þriðjungur undir forustu Jóabs, þriðjungur undir forustu Abísaí Zerújusonar, bróður Jóabs, og þriðjungur undir forustu Íttaí frá Gat. Og konungur sagði við liðið: Eg er fastráðinn í að fara með yður í stríðið.
Liðið svaraði: Þú skalt hvergi fara. Því að þótt vér flýjum, munu þeir eigi hirða um oss, og þótt helmingurinn af oss félli, mundu þeir ekki hirða um oss, því að þú ert sem tíu þúsundir af oss. Er og betra, að þú sért viðbúinn að koma oss til liðs úr borginni.
Þá sagði konungur við þá: Svo vil eg gjöra, sem yður lízt. Þá nam konungur staðar öðrumegin við borgarhliðið, en alt liðið hélt af stað, hundruðum og þúsundum saman.
En konungur lagði svo fyrir þá Jóab, Abísaí og Íttaí: Farið vægilega með sveininn Absalóm. Og alt liðið heyrði konung bjóða hershöfðingjunum svo um Absalóm.
Síðan hélt liðið út til bardaga við Ísrael, og hófst orusta í Efraímskógi.
Biðu Ísraelsmenn þar ósigur fyrir Davíðs mönnum; varð þar mikið mannfall á þeim degi: tuttugu þúsundir manns.
Dreifðist bardaginn þar um alt landið, og varð skógurinn fleiri mönnum að líftjóni heldur en sverðið hafði orðið þann dag.
Þá vildi svo til, að Absalóm rakst á menn Davíðs. En Absalóm reið múl einum, og rann múllinn inn undir þétt lim mikillar eikar og festist höfuð hans í eikinni; hékk hann þar milli himins og jarðar, en múllinn, sem hann reið, rann undan honum.
Þetta sá maður nokkur, sagði Jóab frá því og mælti: Sjá, eg sá Absalóm hanga í eik einni.
Þá sagði Jóab við manninn, sem færði honum tíðindin: Nú, fyrst þú sást hann, hví laust þú þá ekki þegar á honum? Þá skyldi eg hafa gefið þér tíu sikla silfurs og belti.
Þá sagði maðurinn við Jóab: Þó að taldir væru í lófa mér þúsund siklar silfurs, mundi eg samt ekki leggja hönd á konungsson, því að í áheyrn vorri lagði konungur svo fyrir þig, Abísaí og Íttaí: Gætið sveinsins Absalóms.
En ef eg hefði breytt sviksamlega við hann — og enginn hlutur er konungi hulinn —, þá mundir þú hafa staðið fjarri.
Þá sagði Jóab: Ekki má eg þá lengur tefja hjá þér; greip þrjú skotspjót og rak þau í brjóst Absalóms. En með því að hann enn var með lífi í limi eikarinnar,
þustu að tíu knapar, skjaldsveinar Jóabs, og lustu Absalóm til bana.
Þá lét Jóab þeyta lúðurinn, og liðið hætti að elta Ísrael, því að Jóab stöðvaði herinn.
Síðan tóku þeir Absalóm, köstuðu honum í gryfju eina mikla þar á skóginum og urpu yfir hann afarmikla steindys, en allir Ísraelsmenn flýðu, hver heim til sín.
En Absalóm hafði þegar í lifanda lífi tekið merkissteininn í Kongsdal og reist hann handa sér, með því að hann sagði: Eg á engan son til að halda uppi nafni mínu, og nefnt merkissteininn nafni sínu. Fyrir því er hann enn í dag nefndur Absalómsvarði.
En Akímaaz Zadóksson mælti: Eg ætla að hlaupa og færa konungi fagnaðartíðindin, að Drottinn hafi rétt hluta hans á óvinum hans.
En Jóab sagði við hann: Þú ert ekki maður til að flytja tíðindin í dag; öðru sinni getur þú flutt tíðindin; en í dag getur þú ekki flutt tíðindin, því að konungsson er dauður.
Því næst sagði Jóab við Blálendinginn: Far þú og seg konunginum það, sem þú hefir séð. Þá laut Blálendingurinn Jóab og hljóp af stað.
Og Akímaaz Zadóksson kom enn að máli við Jóab og mælti: Komi hvað sem koma vill: leyf og mér að fara og hlaupa á eftir Blálendingnum. Jóab svaraði: Til hvers viltu vera að hlaupa þetta, sonur minn, þar sem þér þó eigi munu greidd verða nein sögulaunin.
Hann svaraði: Komi hvað sem koma vill: eg hleyp. Þá sagði hann við hann: Hlauptu þá! Þá hljóp Akímaaz af stað veginn yfir Jórdan-sléttlendið og komst á undan Blálendingnum.
En Davíð sat milli borgarhliðanna tveggja. En sjónarvörðurinn steig upp á þak hliðsins upp á múrinn; hóf hann upp augu sín og sá, hvar maður kom hlaupandi einn saman.
Sjónarvörðurinn kallaði og sagði konungi frá því. En konungur mælti: Ef hann fer einn saman, þá flytur hann góð tíðindi. En hinn hljóp í sífellu og bar hann óðum nær.
Þá sá sjónarvörðurinn annan mann koma hlaupandi. Kallaði sjónarvörðurinn þá niður í hliðið og mælti: Þarna kemur annar maður hlaupandi einn saman. Þá mælti konungur: Sá mun og flytja góð tíðindi.
Þá sagði sjónarvörðurinn: Mér sýnist hlaup hins fyrra vera líkt hlaupi Akímaaz Zadókssonar. Konungur mælti: Hann er drengur góður og mun koma með góð tíðindi.
Akímaaz bar þá að og mælti hann við konung: Sit heill! og laut á ásjónu sína til jarðar fyrir konungi og mælti: Lofaður sé Drottinn, Guð þinn, sem framselt hefir þá menn, er upplyftu hendi sinni gegn mínum herra, konunginum.
Konungur mælti: Líður sveininum Absalóm vel? Akímaaz svaraði: Eg sá mannþröng mikla, er Jóab sendi þjón þinn af stað, en ekki vissi eg hvað um var að vera.
Þá sagði konungur: Gakk til hliðar og stattu þarna. Og hann gekk til hliðar og nam þar staðar.
Í því kom Blálendingurinn. Og Blálendingurinn sagði: Minn herra konungurinn meðtaki þau fagnaðartíðindi, að Drottinn hefir rétt hluta þinn í dag á öllum þeim, er risið hafa í gegn þér.
Þá sagði konungur við Blálendinginn: Líður sveininum Absalóm vel? Blálendingurinn mælti: Fari svo fyrir óvinum míns herra konungsins og öllum þeim, er gegn þér rísa til að vinna þér tjón, sem sveini þessum!
Þá varð konungi bilt; gekk hann upp í þaksalinn uppi yfir hliðinu og grét. Og er hann gekk, mælti hann svo: Sonur minn Absalóm; sonur minn, sonur minn Absalóm! Ó, að eg hefði dáið í þinn stað, Absalóm, sonur minn, sonur minn!