Síðari Samúelsbók 16Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Samúelsbók 16

En er Davíð var kominn spölkorn frá hæðinni, kom Zíba, sveinn Mefíbósets, í móti honum með tvo söðlaða asna, klyfjaða tvö hundruð brauðum, hundrað rúsínukökum, hundrað aldinkökum og vínlegli.

Konungur mælti við Zíba: Hvað ætlar þú að gjöra við þetta? Zíba svaraði: Asnarnir eru ætlaðir konungsfólkinu til reiðar, brauðin og aldinin til matar þjónustuliðinu og vínið til drykkjar þeim, er örmagnast kunna á eyðimörkinni.

Þá mælti konungur: Hvar er sonur herra þíns? Og Zíba svaraði konungi: Hann er kyrr í Jerúsalem, því að hann hugsaði: Í dag mun Ísraels hús fá mér aftur konungsríki föður míns.

Þá sagði konungur við Zíba: Sjá, alt sem Mefíbóset á, það sé þitt! Zíba mælti: Eg hneigi mig! Mætti eg jafnan finna náð í augum þínum, minn herra konungur.

En er Davíð konungur kom til Bahúrím, kom þaðan maður af kynþætti Sáls, sem Símeí hét, Gerasson, hann kom bölvandi og ragnandi

og kastaði steinum að Davíð og öllum þjónum Davíðs konungs, en alt fólkið og allir kapparnir gengu til hægri og vinstri hliðar honum.

En Símeí komst svo að orði í formælingum sínum: Burt, burt, blóðhundurinn og hrakmennið!

Nú lætur Drottinn þér í koll koma alt blóð ættar Sáls, í hvers stað þú ert konungur orðinn, og Drottinn hefir gefið konungdóminn í hendur Absalóm syni þínum; og nú er ógæfan yfir þig komin, af því að þú ert blóðhundur.

Þá mælti Abísaí Zerújuson við konung: Hví skal þessi dauði hundur formæla mínum herra konunginum? Lát mig fara og stýfa af honum hausinn.

En konungur svaraði: Hvað hefi eg saman við yður að sælda, Zerújusynir? Ef hann formælir og ef Drottinn hefir sagt honum: Formæl Davíð! — hver vogar þá að segja: Hví gjörir þú þetta?

Og Davíð sagði við Abísaí og við alla þjóna sína: Sjá, fyrst sonur minn, sem út genginn er af lendum mínum, situr um líf mitt, hví þá ekki þessi Benjamíníti? Látið hann í friði og lofið honum að formæla, því að Drottinn hefir sagt honum það.

Vera má að Drottinn líti á eymd mína og bæti mér formæling hans í dag með góðu.

Síðan fór Davíð og menn hans leiðar sinnar, en Símeí gekk í fjallshlíðinni á hlið við hann og formælti honum í sífellu, kastaði steinum að honum og lét moldarhnausana dynja á honum.

Síðan kom konungur og alt fólkið, sem með honum var, uppgefið til Jórdanar og hvíldi sig þar.

En Absalóm og allir Ísraelsmenn komu til Jerúsalem og Akítófel með honum.

Og er Húsaí Arkiti, vinur Davíðs, kom til Absalóms, sagði Húsaí við Absalóm: Konungurinn lifi! konungurinn lifi!

Þá sagði Absalóm við Húsaí: Er þetta kærleikur þinn til vinar þíns? Hvers vegna fórst þú ekki með vini þínum?

Húsaí sagði þá við Absalóm: Nei, því að þann, sem Drottinn og þessi lýður og allir Ísraelsmenn velja — hans maður vil eg vera og hjá honum vil eg dveljast.

Og í annan stað: Hverjum veiti eg þjónustu? Er það ekki syni hans? Eins og eg hefi veitt föður þínum þjónustu, svo mun eg og veita þér.

Þá sagði Absalóm við Akitófel: Leggið nú ráð á, hvað vér skulum gjöra!

Akítófel sagði við Absalóm: Gakk þú inn til hjákvenna föður þíns, sem hann lét eftir verða, til þess að gæta hallarinnar; mun þá allur Ísrael frétta, að þú sért orðinn óþokkaður af föður þínum og mun þá öllum þínum mönnum vaxa hugur.

Þá tjölduðu þeir fyrir Absalóm á þakinu, og Absalóm gekk inn til hjákvenna föður síns í augsýn alls Ísraels.

En þau ráð, er Akítófel réð, þóttu í þá daga eins góð og gild, sem gengið væri til frétta við Guð — svo mikils máttu sín öll ráð Akítófels, bæði hjá Davíð og Absalóm.