Gamla testamentiðSaga
Nú segir frá því, að Absalóm sonur Davíðs átti fríða systur, sem hét Tamar, og Amnon sonur Davíðs feldi hug til hennar.
Og Amnon píndist svo, að hann varð sjúkur út af Tamar systur sinni; því að hún var mey, og Amnon virtist eigi unt að gjöra henni neitt.
En Amnon átti vin, sem Jónadab hét, sonur Símea, bróður Davíðs; og Jónadab þessi var mjög kænn maður.
Og hann sagði við hann: Hví megrast þú svo, konungsson, dag frá degi? viltu ekki segja mér það? Og Amnon sagði við hann: Eg felli hug til Tamar, systur Absalóms bróður míns.
Þá sagði Jónadab við hann: Legst þú í rekkju og lát sem þú sért sjúkur, og þegar faðir þinn kemur til þess að vitja um þig, þá skaltu segja við hann: Lát Tamar systur mína koma og gefa mér að eta; ef hún byggi til matinn fyrir augum mér, svo að eg gæti horft á, þá mundi eg eta úr hendi hennar.
Síðan lagðist Amnon og lézt vera sjúkur. En er konungur kom að vitja um hann, sagði Amnon við konung: Lát Tamar systur mína koma og gjöra tvær kökur að mér áhorfandi, svo að eg megi eta þær úr hendi hennar.
Þá sendi Davíð heim til Tamar og lét segja henni: Far þú í hús Amnons bróður þíns og matreið handa honum.
Þá gekk Tamar í hús Amnons bróður síns, en hann lá í rúminu. Og hún tók deig og hnoðaði og gjörði úr því kökur að honum áhorfandi og bakaði kökurnar.
Og hún tók pönnuna og steypti úr henni frammi fyrir honum, en hann vildi ekki eta. Og Amnon mælti: Látið alla ganga út frá mér. Og allir gengu út frá honum.
Þá sagði Amnon við Tamar: Kom þú með matinn inn í svefnhúsið, svo að eg megi eta úr hendi þinni. Og Tamar tók kökurnar, sem hún hafði gjört, og færði Amnon bróður sínum inn í svefnhúsið.
En er hún rétti honum þær að eta, þreif hann til hennar og sagði við hana: Kom þú og legst með mér, systir mín!
En hún sagði við hann: Nei, bróðir minn, svívirð mig eigi, því að slíkt viðgengst ekki í Ísrael. Frem þú eigi slíka óhæfu.
Og hvað ætti eg af mér að gjöra með vansæmd mína? Og þú mundir talinn eitt hið versta varmenni í Ísrael. Tala þú heldur við konung, því að hann mun ekki synja þér um mig.
En hann vildi ekki hlýða orðum hennar, heldur lét hana kenna aflsmunar og nauðgaði henni og lagðist með henni.
En síðan fékk Amnon mjög mikla óbeit á henni, svo að hin mikla óbeit, er hann hafði á henni, var meiri en ástin, sem hann hafði haft á henni. Og Amnon sagði við hana: Statt upp og haf þig á burt.
Þá sagði hún við hann: Nei, bróðir minn, því að þetta væri enn meira vonzkuverk en það, er þú hefir á mér framið, að senda mig nú burt. En hann vildi ekki hlýða orðum hennar.
Og hann kallaði á svein sinn, er þjónaði honum, og mælti: Komið þessari burt frá mér út á götuna, og lokaðu dyrunum á eftir henni.
En hún var í dragkyrtli — því að svo voru fyrrum konungsdætur klæddar, meðan þær voru meyjar. Og þjónn hans fór með hana út á götuna og lokaði dyrunum á eftir henni.
Þá jós Tamar mold yfir höfuð sér og reif sundur dragkyrtilinn, sem hún var í; lagði síðan hönd á höfuð sér og gekk hljóðandi burt.
Og Absalóm bróðir hennar sagði við hana: Hefir Amnon bróðir þinn verið hjá þér? Og þegi þú nú, systir mín, hann er bróðir þinn. Láttu þetta ekki á þig fá. Og Tamar dvaldi ein og yfirgefin í húsi Absalóms bróður síns.
Og er Davíð konungur frétti alt þetta, varð hann reiður mjög, en hann vildi eigi hryggja Amnon son sinn, því að hann elskaði hann, af því að hann var frumgetningur hans.
En Absalóm mælti eigi orð við Amnon, hvorki ilt né gott; því að Absalóm hataði Amnon fyrir það, að hann hafði svívirt Tamar systur hans.
Tveimur árum síðar bar svo við, að Absalóm lét klippa sauði Sína í Baal-Hazór, sem er hjá Efraím, og bauð Absalóm til öllum sonum konungs.
Absalóm gekk og fyrir konung og mælti: Sjá, þjónn þinn lætur nú klippa sauði sína, og bið eg að konungurinn og þjónar hans komi með þjóni þínum.
En konungur sagði við Absalóm: Nei, sonur minn, eigi skulum vér allir fara, svo að vér gjörum þér eigi átroðning. Og þótt hann legði að honum, vildi hann ekki fara, en bað hann vel fara.
Þá sagði Absalóm: Fyrst þú vilt ekki fara, þá leyf þú að Amnon bróðir minn fari með oss. Konungur svaraði honum: Hví skal hann með þér fara?
En Absalóm lagði fast að honum; lét hann þá Amnon fara með honum og alla konungssonu. Og Absalóm gjörði veizlu, svo sem konungsveizla væri.
Og Absalóm lagði svo fyrir sveina sína: Gefið gætur, þegar Amnon gjörist hreifur af víninu og eg segi við yður: Drepið Amnon! — þá skuluð þér vega hann; óttist ekki, það er eg, sem lagt hefi þetta fyrir yður; verið hughraustir og sýnið karlmensku.
Og sveinar Absalóms gjörðu svo við Amnon, sem Absalóm hafði fyrir þá lagt. Þá spruttu allir synir konungs upp, stigu á bak múlum sínum og flýðu.
En meðan þeir voru á leiðinni, kom sú fregn til konungs, að Absalóm hefði drepið alla sonu konungs, og að enginn þeirra væri eftir skilinn.
Þá stóð konungur upp og reif sundur klæði sín og lagðist á jörðu, og allir þjónar hans, þeir er stóðu umhverfis hann, rifu sundur klæði sín.
Þá tók Jónadab, sonur Símea, bróður Davíðs, til máls og sagði: Herra minn, hugsa þú ekki, að þeir hafi drepið alla hina ungu menn, sonu konungsins, því að Amnon einn er dauður; enda vissi á ilt svipurinn, sem legið hefir um munn Absalóms, síðan er Amnon nauðgaði Tamar systur hans.
Minn herra konungurinn láti þetta því eigi á sig fá og hugsi ekki, að allir synir konungsins séu dauðir; nei, Amnon einn er dauður.
En Absalóm flýði. En er varðsveininum varð litið upp, sá hann margt manna koma ofan fjallið á veginum til Hórónaím. Varðmaðurinn kom og sagði konungi frá og mælti: Eg sá menn koma af veginum til Hórónaím niður undan fjallinu.
Þá sagði Jónadab við konung: Sjá, þar koma synir konungsins; svo hefir alt til gengið, sem þjónn þinn sagði.
Og er hann hafði lokið máli sínu, sjá, þá komu synir konungs og grétu hástöfum; konungur og þjónar hans tóku þá og að gráta ákaflega.
En Absalóm flýði og fór til Talmaí Ammíhúðssonar konungs í Gesúr. Og konungur harmaði son sinn alla daga.
Og Absalóm flýði og fór til Gesúr og var þar í þrjú ár.
En konungur þráði að fara til Absalóms, því að hann hafði huggast látið yfir því, að Amnon var dáinn.