Gamla testamentiðSaga
Manasse var tólf ára gamall, þá er hann varð konungur, og fimtíu og fimm ár ríkti hann í Jerúsalem.
Hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins, og drýgði þannig sömu svívirðingarnar sem þær þjóðir, er Drottinn hafði stökt burt undan Ísraelsmönnum.
Hann reisti af nýju hæðirnar, er Hiskía faðir hans hafði rífa látið, reisti Baölunum ölturu og lét gjöra asérur, dýrkaði allan himinsins her og þjónaði þeim.
Hann reisti og ölturu í musteri Drottins, því er Drottinn hafði um sagt: Í Jerúsalem skal nafn mitt búa að eilífu!
Og hann reisti ölturu fyrir allan himinsins her í báðum forgörðum musteris Drottins.
Hann lét og sonu sína ganga gegnum eldinn í Hinnómssonardal, fór með spár og fjölkyngi og töfra og skipaði særingamenn og spásagna; hann aðhafðist margt það, sem ilt var í augum Drottins, til þess að egna hann til reiði.
Og hann setti skurðgoðið, er hann hafði gjöra látið, í musteri Guðs, er Guð hafði sagt um við Davíð og Salómó son hans: Í þessu húsi og í Jerúsalem, sem eg hefi útvalið af öllum ættkvíslum Ísraels, vil eg láta nafn mitt búa að eilífu.
Og eg vil eigi framar láta Ísrael fara landflótta úr landi því, er eg gaf feðrum þeirra, svo framarlega sem þeir gæta þess að breyta að öllu svo sem eg hefi boðið þeim, að öllu eftir lögmáli því og lögum og ákvæðum, er gefin voru fyrir Móse.
En Manasse leiddi Júda og Jerúsalem-búa afvega, svo að þeir breyttu ver en þær þjóðir, er Drottinn hafði eytt fyrir Ísraelsmönnum.
Og Drottinn talaði til Manasse og til lýðs hans, en þeir gáfu því engan gaum.
Þá lét Drottinn hershöfðingja Assýríu-konungs ráðast að þeim; þeir tóku Manasse höndum með krókum, bundu hann eirfjötrum og fluttu hann til Babel.
En er hann var í nauðum staddur, reyndi hann að blíðka Drottin, Guð sinn, og lægði sig mjög fyrir Guði feðra sinna.
Og er hann bað hann, þá bænheyrði Drottinn hann. Hann heyrði grátbeiðni hans og lét hann hverfa heim aftur til Jerúsalem í ríki sitt. Komst þá Manasse að raun um, að Drottinn er Guð.
Eftir þetta reisti hann ytri múr fyrir Davíðsborg að vestanverðu við Gíhon í dalnum, og þangað að, er gengið er inn í fiskhliðið, reisti hann í kring um Ófel, og gjörði hann mjög háan. Hann setti og herforingja í allar kastalaborgir í Júda.
Þá útrýmdi hann og útlendu guðunum og líkneskinu úr musteri Drottins, svo og öllum ölturunum, er hann hafði reisa látið á musterisfjalli Drottins og í Jerúsalem, og fleygði þeim út fyrir borgina.
En altari Drottins reisti hann við, og færði á því heillafórnir og þakkarfórnir, og Júdamönnum bauð hann að þjóna Drottni, Guði Ísraels.
En þó færði lýðurinn enn þá fórnir á hæðunum, en samt aðeins Drottni, Guði sínum.
En það sem meira er að segja um Manasse og bæn hans til Guðs hans, svo og orð sjáandanna, er töluðu til hans í nafni Drottins, Guðs Ísraels, það er ritað í sögu Ísraels-konunga.
En um bæn hans og hvernig hann var bænheyrður, og um allar syndir hans og ótrúmensku, svo og um staðina, þar sem hann reisti hæðir og setti asérur og líkneski, áður en hann lægði sig, um það er ritað í sögu sjáandanna.
Og Manasse lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var jarðaður í höll sinni. Og Amón sonur hans tók ríki eftir hann.
Amón hafði tvo um tvítugt, þá er hann varð konungur, og tvö ár ríkti hann í Jerúsalem.
Og hann gjörði það sem út var í augum Drottins, svo sem gjört hafði Manasse faðir hans. Öllum skurðgoðunum, er Manasse faðir hans hafði gjöra látið, færði Amón margar fórnir og þjónaði þeim.
En hann lægði sig eigi fyrir Drottni, svo sem gjört hafði Manasse faðir hans, heldur jók hann á sök sína.
Og þjónar hans gjörðu samsæri í gegn honum, og drápu hann í höll hans.
En landslýðurinn drap alla mennina, er gjört höfðu samsæri gegn Amón konungi. Síðan tók landslýðurinn Jósía son hans til konungs eftir hann.