Gamla testamentiðSaga
Eftir þessa atburði og eftir að hann hafði sýnt trúmensku þessa, kom Sanherib Assýríu-konungur. Hann réðst inn í Júda, settist um víggirtar borgir og hugðist að ná þeim á sitt vald.
Og er Hiskía varð þess vís, að Sanherib kæmi og ætlaði sér að ráða á Jerúsalem,
þá réðst hann um við höfuðsmenn sína og kappa, að stemma vatnslindirnar utanborgar, og veittu þeir honum stuðning.
Kom þá saman fjöldi fólks og stemdu allar lindir og lækinn, er rann um mitt landið, og sögðu: Hvers vegna ættu Assýríu-konungar að finna gnóttir vatns, er þeir koma?
Hann herti því upp hugann, gjörði alstaðar við múrinn, þar sem hann var brotinn niður, gekk upp á lturnana og ytri múrinn úti fyrir, víggirti Milló í Davíðsborg og lét gjöra afarmikið af af skotvopnum og skjöldum.
Síðan skipaði hann herforingja yfir lýðinn og stefndi þeim til sín á torginu við borgarhliðið, talaði vinsamlega til þeirra og mælti:
Verið hughraustir og öruggir, óttist eigi né hræðist Assýríu-konung og allan þann manngrúa, sem með honum er, því að sá er meiri, sem með oss er, en með honum.
Því að hann styður mannlegur máttur, en með oss er Drottinn, Guð vor, til þess að hjálpa oss og heyja orustur vorar. Og lýðurinn treysti á orð Hiskía Júda-konungs.
Eftir þetta sendi Sanherib Assýríu-konungur þjóna sína til Jerúsalem — en sjálfur var hann hjá Lakís og alt lið hans hjá honum — á fund Hiskía Júda-konungs og allra Júdamanna, þeirra er voru í Jerúsalem, með svolátandi orðsending:
Svo segir Sanherib Assýríu-konungur: Á hvað treystið þér, er þér sitjið innikreptir í Jerúsalem?
Vissulega ginnir Hiskía yður, til þess að láta yður deyja úr hungri og þorsta, er hann segir: Drottinn, Guð vor, mun frelsa oss af hendi Assýríu-konungs!
Hefir þá ekki Hiskía þessi afnumið hæðir hans og ölturu, er hann bauð Júdamönnum og Jerúsalem-búum á þessa leið: Þér eigið að falla fram fyrir einu altari, og á því einu megið þér brenna reykelsi?
Vitið þér eigi hvað eg hefi gjört og feður mínir við allar þjóðir í löndunum? Gátu þjóðguðir landanna frelsað lönd þeirra af hendi minni?
Hver er sá af öllum guðum þessara þjóða, sem feður mínir hafa gjöreytt, er hafi getað frelsað lýð sinn af hendi minni, svo að yðar Guð geti frelsað yður af hendi minni?
Látið því eigi Hiskía tæla yður né ginna á slíkan hátt. Trúið honum eigi! Því að eigi hefir neinn guð nokkurrar þjóðar eða ríkis getað frelsað lýð sinn af hendi minni eða feðra minna; hve miklu síður mun þá yðar Guð frelsa yður af hendi minni?
Og enn fleira töluðu þjónar hans gegn Drottni Guði og gegn Hiskía þjóni hans.
Hann ritaði og bréf til þess að smána Drottin, Guð Ísraels, og tala gegn honum, á þessa leið: Eins og þjóðguðir landanna eigi frelsuðu þjóðir sínar af hendi minni, svo mun og Guð Hiskía eigi frelsa sinn lýð af hendi minni.
Og þeir kölluðu með hárri röddu á Júda-tungu til lýðsins í Jerúsalem, er var á múrunum, til þess að gjöra þá hrædda og felmtsfulla, svo að þeir gætu náð borginni,
og töluðu um Guð Jerúsalemborgar eins og um guði heiðnu þjóðanna, sem eru handaverk manna.
Þá er Hiskía konungur og Jesaja spámaður Amozson báðust fyrir út af þessu, og hrópuðu til himins,
þá sendi Drottinn engil, og drap hann alla kappa, höfuðsmenn og herforingja í herbúðum Assýríu-konungs, svo að hann sneri aftur með sneypu heim í land sitt. En er hann kom í hof guðs síns, þá feldu hans eigin synir hann þar með sverði.
Þannig frelsaði Drottinn Hiskía og Jerúsalem-búa af hendi Sanheribs Assýríu-konungs og af hendi allra annara, og veitti þeim frið alt um kring.
Og margir færðu Drottni gjafir til Jerúsalem, og Hiskía Júda-konungi gersemar, og eftir þetta var hann frægur talinn meðal allra þjóða.
Um þessar mundir tók Hiskía sótt og var að dauða kominn. Þá bað hann til Drottins, og talaði hann til hans og gaf honum tákn.
En Hiskía endurgalt eigi velgjörð þá, er honum var sýnd, heldur varð drembilátur, og kom því reiði yfir hann og yfir Júda og Jerúsalem.
Þá lægði Hiskía dramb sitt, bæði hann og Jerúsalembúar, og kom því reiði Drottins eigi yfir þá meðan Hiskía lifði.
Og Hiskía bjó við afarmikinn auð og sæmd. Hann lét gjöra féhirzlur handa sér fyrir silfur og gull og dýra steina, svo og fyrir kryddjurtir, skjöldu og alls konar verðmæta muni,
forðabúr fyrir korn-, aldinlagar- og olíu-afurðirnar, svo og hús fyrir alls konar kvikfénað og fjárborgir fyrir hjarðirnar.
Og hann lét gjöra borgir handa sér og aflaði sér fjölda hjarða af sauðum og nautum, því að Guð veitti honum afarmiklar eignir.
Hiskía þessi stemdi og efri uppsprettur Gíhon-lindar, og veitti vatninu niður eftir að Davíðsborg vestanverðri, og Hiskía varð auðnumaður í öllu því, er hann tók sér fyrir hendur.
Þess vegna gaf Guð hann í hendur sendimanna Babelhöfðingjanna, er sendir voru til hans til þess að frétta um táknið, er orðið hafði í landinu, aðeins til þess að reyna hann, svo að hann mætti fá að vita um alt það, er honum bjó í huga.
En það sem meira er að segja um Hiskía og góðverk hans, það er ritað í vitrun Jesaja Amozsonar spámanns, í bók Júda- og Ísraels-konunga.
Og Hiskía lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum, og var grafinn þar sem gengið er upp að gröfum Davíðsniðja, og allur Júda og Jerúsalem-búar sýndu honum sæmd, er hann andaðist. Og Manasse sonur hans tók ríki eftir hann.