Gamla testamentiðSaga
En er konungdómur Rehabeams var fastur orðinn, og hann sjálfur orðinn fastur í sessi, þá yfirgaf hann lögmál Drottins og allur Ísrael með honum.
En á timta ríkisári Rehabeams fór Sísak Egiptalandskonungur herför móti Jerúsalem — af því að þeir höfðu sýnt Drottinn ótrúmensku —
með tólf hundruð vögnum og sextíu þúsund riddurum; mátti eigi koma tölu á fólk það, er með honum kom frá Egiptalandi: Líbýumenn, Súkítar og Blálendingar.
Hann tók kastalaborgirnar, þær er voru í Júda, og komst alt til Jerúsalem.
En Semaja spámaður kom til Rehabeams og höfðingja Júda, er hörfað höfðu fyrir Sísak til Jerúsalem, og mælti til þeirra: Svo segir Drottinn: Þér hafið yfirgefið mig, svo ofursel eg og yður á vald Sísaks.
Þá auðmýktu þeir sig, höfðingjar Ísraels og konungur, og sögðu: Réttlátur Gl er Drottinn!
En er Drottinn sá, að þeir höfðu auðmýkt sig, kom orð Drottins til Semaja, svolátandi: Þeir hafa auðmýkt sig; eg skal eigi tortíma þeim, heldur fulllingja þeim að nokkurn, og eigi hella reiði minni yfir Jerúsalem fyrir Sisak.
Þó skulu þeir verða lýðskyldir honum, að þeir megi læra að þekkja muninn á að þjóna mér og á að þjóna heiðnum konungum.
Síðan fór Sísak Egiptalands-konungur herför móti Jerúsalem og tók fjársjóðu húss Drottins og fjársjóðu konungshallarinnar, tók það alt saman; hann tók og gullskjölduna, er Salómó hafði gjöra látið.
Rehabeam konungur lét í þeirra stað gjöra eirskjöldu og fékk þá höfuðsmönnum lífvarðarins til geymslu, þeim er geyma dyra á höll konungs.
Og í hvert sinn, er konungur gekk í hús Drottins, komu varðliðsmennirnir og báru þá, og fóru síðan með þá aftur í herbergi varðliðsmannanna.
En er hann auðmýkti sig, hvarf reiði Drottins frá honum og tortímdi honum eigi með öllu; enn þá var þó eitthvað gott til í Júda.
Og Rehabeam konungur efldist í Jerúsalem og sat að völdum, því að Reliabeam hafði einn um fertugt, þá er hann varð konungur, og seytján ár ríkti hann í Jerúsalem, borginni sem Drottinn hafði útvalið af öllum ættkvíslum Ísraels, til þess að láta nafn sitt búa þar. En móðir hans hét Naama og var ammónítísk.
Og hann breytti illa, því að hann lagði eigi hug á að leita Drottins.
En saga Rehabeams, frá upphafi til enda, er rituð í sögu Semaja spámanns og Íddós sjáanda, í ættartölunum. Og ófriður stóð ávalt milli Rehabeams og Jeróbóams.
Og Rehabeam lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var jarðaður í Davíðsborg. Og Abía sonur hans tók ríki eftir hann.