Síðari Kroníkubók 11Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Kroníkubók 11

En er Reliabeam kom til Jerúsalem, safnaði hami saman Júdahúsi og Benjamín, hundrað og áttatíu þúsundum einvalaliðs, til þess að berjast við Ísrael og ná konungdóminum aftur undir Reliabeam.

En orð Drottins kom til Semaja guðsmanns, svolátandi:

Tala þú svo til Rehabeams, sonar Salómós, konungs í Júda, og til allra Ísraelsmanna í Júda og Benjamín:

Svo segir Drottinn: Farið eigi og berjist eigi við bræður yðar, fari hver heim til sín, því að minni tilhlutun er þetta orðið. Og er þeir heyrðu orð Drottins, hurfu þeir aftur og hættu við að fara á móti Jeróbóam. Frá Rehabeam.

Rehabeam bjó síðan í Jerúsalem. Og hann gjörði nokkurar borgir Í Júda að köstulum,

og hann gjörði Betlehem, Etam, Tekóa,

Bet-Zúr, Sókó, Adúllam,

Gat, Maresa, Sif,

Adóraím, Lakís, Aseka,

Zorea, Ajalon og Hebron, sem eru í Júda og Benjamín, að kastalaborgum.

Gjörði hann kastalana rammgjörva, setti þar höfðingja fyrir og lét þar forða vista, olíu og víns.

Og í hverja borg lét hann skjöldu og spjót, og víggirti þær afarrammlega. Og Júda og Benjamín lutu honum.

En prestarnir og Levítarnir, er voru um allan Ísrael, komu úr öllum héruðum sínum og gengu honum til handa.

Því að Levítarnir yfirgáfu beitilönd sín og óðul og fóru til Júda og Jerúsalem, því að Jeróbóam og synir hans höfðu rekið þá úr prestþjónustu fyrir Drottni, og hafði hann sjálfur skipað sér presta fyrir hæðirnar og skógartröllin og kálfana, er hann hafði gjöra látið.

og hafði hann sjálfur skipað sér presta fyrir hæðirnar og skógartröllin og kálfana, er hann hafði gjöra látið.

Og þeim kr af öllum ættkvíslum Ísraels, er lögðu hug á að leita Drottins, Guðs Ísraels. Komu þeir til Jerúsalem til þess að færa fórnir Drottni, Guði feðra þeirra.

Og þeir efldu Júdaríki og styrktu Rehabeam, son Salómós, í þrjú ár. Því að þeir fetuðu í fótspor Davíðs og Salómós í þrjú ár.

Og Rehabeam tók sér fyrir konu Mahalat, dóttur Jerímóts Davíðssonar og Abíhaílar, dóttur Elíabs Ísaísonar;

ól hún honum sonu: Jeús, Semarja og Saham.

Og eftir hana fékk hann Maöku Absalómsdóttur; hún ól honum Abía, Atlaí, Sísá og Selómít.

Og Rehabeam unni Maðku Absalómsdóttur meira en öllum öðrum konum sínum og hjákonum, því að hann hafði tekið sér átján konur og sextíu hjákonur, og gat tuttugu og átta sonu og sextíu dætur.

Og Rehabeam gjörði Abía, son Maðku, að ætthöfðingja, að höfðingja meðal bræðra sinna, því að hann hugðist mundu gjöra hann að konungi.

Og hann fór hyggilega að ráði sínu og skifti öllum sonum sínum niður á öll héruð í Júda og Benjamín, niður á allar kastalaborgir; fékk þeim gnóttir vista og bað þeim fjölda kvenna.