Gamla testamentiðSaga
K Á níunda ríkisári hans, á tíunda degi hins tíunda mánaðar, kom Nebúkadnezar Babel-konungur með allan sinn ber til Jerúsalem og settist um hana, og þeir reistu hervirki hringinn í kring um hana.
Varð borgin þannig í umsátri fram á ellefta ríkisár Zedekía konungs.
Í fjórða mánuðinum, á níunda degi mánaðarins, er hungrið tók að sverfa að borginni og landslýður var orðinn vistalaus,
þá var brotið skarð inn í borgina; og konungur og allir hermennirnir flýðu um nóttina gegnum hliðið milli beggja múranna, sem er hjá konungsgarðinum, þótt Kaldear umkringdu borgina, og héldu leiðina til sléttlendisins.
En her Kaldea veitti konungi eftirför og náði honum á Jeriíkó-völlum, er allur her hans hafði tvístrast burt frá honum.
Tóku þeir konung höndum og fluttu hann til Ribla til Babel-konungs; hann kvað upp dóm hans.
Drápu þeir sonu Zedekía fyrir augum hans, en Zedekia lét hann blinda og binda eirfjötrum. Síðan fluttu þeir hann til Babel.
En í fimta mánuði, á sjöunda degi mánaðarins — það er á nítjánda ríkisári Nebúkadnezars Babel-konungs — kom Nebúsaradan lífvarðarforingi, vildarþjónn Babel-konungs, til Jerúsalem
og brendi musteri Drottins og konungshöllina, og öll hús í Jerúsalem og öll hús stórmennanna brendi hann í eldi.
En allur Kaldea-her, sá er var með tifvarðarforingjanum, reif niður múrana umhverfis Jerúsalem.
En leifar lýðsins — þá er eftir voru í borginni — og liðhlaupana, þá er hlaupist höfðu í lið með Babel-konungi, og þá sem eftir voru af iðnaðarmönnum herleiddi Nebúsaradan lífvarðarforingi til Babel.
En af almúga landsins lét lífvarðarforinginn nokkura verða eftir sem víngarðsmenn og akurkarla.
En eirsúlurnar, er voru hjá musteri Drottins, og undirstöðupallana og eirhafið, er voru í musteri Drottins, brutu Kaldear sundur og fluttu eirinn til Babel.
Og katlana, eldspaðana, skarbítana, bollana og öll eiráhöldin, er notuð voru við guðsþjónustuna, tóku þeir.
Þá tók og lífvarðarforinginn eldpönnurnar og fórnarskálarnar — alt sem var af gulli og silfri;
súlurnar tvær, hafið og undirstöðupallana, er Salómó hafði gjöra látið í musteri Drottins — eirinn úr öllum þessum áhöldum varð eigi veginn.
Önnur súlan var átján álnir á hæð og eirhöfuð var ofan á henni, og höfuðið var fimm álnir á hæð, og riðið net og granatepli voru umhverfis höfuðið, alt af eiri, og eins var á riðna netinu á hinni súlunni.
Og lífvarðarforinginn tók Seraja höfuðprest og Zefanía annan prest og þröskuldsverðina þrjá.
Og úr borginni tók hann hirðmann einn, er skipaður var yfir hermennina, og fimm menn af þeim, er daglega litu auglit konungs, er fundust í borginni, og ritara hershöfðingjans, þess er bauð út landslýðnum, og sextíu manns af sveitafólki, því er fanst í borginni, —
þá tók Nebúsaradan lífvarðarforingi og flutti þá til Ribla til Babel-konungs.
En Babel-konungur lét drepa þá í Ribla í Hamat-héraði. Þannig var Júda herleiddur úr landi sínu.
En yfir lýðinn, sem eftir varð í Júdalandi, þann er Nebúkadnezar Babel-konungur lét þar eftir verða, yfir þá setti hann Gedalja, son Ahíkams Safanssonar.
Og er allir hershöfðingjarnir og menn þeirra fréttu, að Babel-konungur hefði skipað Gedalja landstjóra, fóru þeir til Mizpa á fund Gedalja, þeir Ísmael Netanjason, Jóhanan Kareason, Seraja Tanhúmetsson frá Netófa og Jaasanja, sonur Maakatítans, ásamt mönnum sínum.
Vann Gedalja þeim eið og mönnum þeirra og sagði við þá: Óttist eigi Kaldea; verið kyrrir í landinu og þjónið Babel-konungi, og mun yður vel vegna.
En á sjöunda mánuði kom Ísmael Netanjason, Elísamasonar, af konungsættinni, og tíu menn með honum, og drápu Gedalja og þá Júdamenn og Kaldea, sem hjá honum voru í Mizpa.
Þá tók allur lýðurinn sig upp, bæði smáir og stórir, og hershöfðingjarnir og fóru til Egiptalands, því að þeir voru hræddir við Kaldea.
Og á þrítugasta og sjöunda útlegðarári Jójakíns Júdakonungs, í tólfta mánuðinum, tuttugasta og sjöunda dag mánaðarins, náðaði Evíl-Meródak Babel-konungur, árið sem hann kom til ríkis, Jójakín Júdakonung og tók hann úr dýflissunni.
Og hann talaði vingjarnlega við hann og setti stól hans ofar stólum hinna konunganna, sem hjá honum voru í Babel.
Og hann fór úr bandingja-fötum sínum og borðaði stöðuglega með honum meðan hann lifði.
En uppeldi hans — hið stöðuga uppeldi — var honum veitt af konungi, það er hann þurfti á degi hverjum, alla æfi hans.