Gamla testamentiðSaga
Á hans dögum fór Nebúkadnezar konungur í Babel herför þangað, og varð Jójakím honum lýðskyldur í þrjú ár; síðan brá hann trúnaði við hann.
Þá sendi Drottinn í móti honum ránsflokka Kaldea, ránsflokka Sýrlendinga, ránsflokka Móabíta og ránsflokka Ammóníta; hann sendi þá gegn Júda, til þess að eyða landið, samkvæmt orði Drottins, því er hann hafði talað fyrir munn þjóna sinna, spámannanna.
Aðeins vegna reiði Drottins fór svo fyrir Júda, til þess að hann gæti rekið þá burt frá augliti sínu, sakir synda Manasse, samkvæmt öllu því, er hann hafði gjört;
svo og sakir þess saklausa blóðs, er hann hafði úthelt, svo að hann fylti Jerúsalem saklausu blóði, — það vildi Drottinn ekki fyrirgefa.
En það sem meira er að segja um Jójakím og alt, sem hann gjörði, það er ritað í árbókum Júda-konunga.
Og Jójakím lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum, og Jójakin sonur hans tók ríki eftir hann.
En Egiptalands-konungur fór enga herför framar úr landi sínu, því að Babel-konungur hafði unnið land alt frá Egiptalandsá að Evfratfljóti, það er legið hafði undir Egiptalands-konung.
Jójakín var átján ára gamall, þá er hann varð konungur, og þrjá mánuði ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Nehústa Elnatansdóttir og var frá Jerúsalem.
Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins, með öllu svo sem gjört hafði faðir hans.
Um þær mundir fóru þjónar Nebúkadnezars, konungs í Babel, herför til Jerúsalem, og varð borgin í umsátri.
Og Nebúkadnezar Babel-konungur kom sjálfur til borgarinnar, þá er þjónar hans sátu um hana.
Gekk þá Jójakín Júda-konungur út á móti Babel-konungi ásamt móður sinni, þjónum sínum, herforingjum og hirðmönnum; og Babel-konungur tók hann höndum á áttunda ríkisstjórnarári hans.
Og hann flutti þaðan alla fjársjóðu musteris Drottins og fjársjóðu konungshallarinnar og tók gullið af öllum áhöldum, er Salómó Ísraels-konungur hafði gjöra látið í musteri Drottins, eins og Drottinn hafði sagt.
Og hann herleiddi alla Jerúsalem og alla höfðingja og alla vopnfæra menn, tíu þúsund að tölu, svo og alla trésmiði og járnsmiði; ekkert varð eftir nema fátækasti hluti landslýðsins.
Og hann herleiddi Jójakin til Babel; og konungsmóður og konur konungsins og hirðmenn hans og höfðingja landsins herleiddi hann og frá Jerúsalem til Babel.
svo og alla vopnfæra menn, sjö þúsund að tölu, og trésmiði og járnsmiði, þúsund að tölu, er allir voru hraustir hermenn, — þá herleiddi Babel-konungur til:
Og konungurinn í Babel skipaði Mattanja föðurbróður hans konung í hans stað og breytti nafni hans í Zedekia. Frá Zedekía Júda-konungi. Herleiðingin síðari.
Zedekía var tuttugu og eins árs að aldri, þá er hann varð konungur, og ellefu ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Hamútal Jeremíadóttir og var frá Líbna.
Og hann gjörði það sem út var í augum Drottins, með öllu svo sem gjört hafði Jójakím.
Því að vegna reiði Drottins fór svo fyrir Jerúsalem og Júda, unz hann hafði burtsnarað þeim frá augliti sínu. En Zedekía brá trúnaði við Babel-konung.