Síðari Konungabók 22Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Konungabók 22

Ó Jósía var átta vetra gamall, þá er hann varð konungur, og þrjátíu og eitt ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Jedída Adajadóttir og var frá Bozkat.

Og hann gjörði það sem rétt var Í augum Drottins og fetaði algjörlega í fótspor Davíðs forföður síns og veik hvorki af til hægri né vinstri.

En á átjánda ríkisári Jósía konungs sendi konungur Safan Azaljason, Mesúllamssonar, kanzlara í musteri Drottins og sagði:

gakk þú til Hilkía æðsta prests og innsigla fé það, er borið hefir verið í musteri Drottins, það er þröskuldsverðirnir hafa safnað saman af lýðnum,

svo að það verði fengið í hendur verkstjórunum, þeim er umsjón hafa með musteri Drottins, svo að það verði fengið í hendur verkamönnunum, sem vinna að því í musteri Drottins, að gjöra við skemdir á musterinu,

trésmiðunum og byggingamönnunum og múrurunum, svo og til að kaupa fyrir við og höggna steina, til þess að gjöra við musterið.

Þó var ekki haldinn reikningur við þá á fénu, sem þeim var fengið í hendur, heldur gjöra þeir það upp á æru og trú.

sÞá mælti Hilkía æðsti prestur við Safan kanzlara: Eg hefi fundið lögbókina í musteri Drottins, Og Hilkía fékk Safan bókina og hann las hana.

Síðan fór Safan kanælari til konungs og skýrði konungi frá erindislokum og mælti: Þjónar þínir hafa látið af hendi fé það, er var í musteri Drottins, og fengið í hendur verkstjórunum, sem umsjón hafa með musteri Drottins.

Og Safan kanælari sagði konungi frá og mælti: Hilkía prestur fékk mér bók. Og Safan las hana fyrir konungi.

En er konungur heyrði orð lögbókarinnar, reif hann klæði sín.

Og konungur bauð þeim Hilkía presti, Ahíkam Safanssyni, Akbór Míkajasyni, Safan kanzlara og Asaja konungsþjóni á þessa leið:

Farið og gangið til frétta við Drottin fyrir mig og fyrir lýðinn og fyrir allan Júda um þessa nýfundnu bók, því að mikil er heift Drottins, sú er upptendruð er í gegn oss, af því að feður vorir hafa eigi hlýtt orðum bókar þessarar, með því að gjöra að öllu svo sem skrifað er í henni.

Þá fóru þeir Hilkía prestur, Ahíkam, Akbór, Safan og Asaja til Huldu spákonu, konu Sallúms Tikvasonar, Harhasonar, klæðageymis; bjó hún í Jerúsalem í öðru borgarhverfi og töluðu þeir við hana.

Þá mælti hún við þá: Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Segið manninum, er sendi yður til mín:

Svo segir Drottinn: Sjá, eg leiði ógæfu yfir þennan stað og íbúa hans, allar ógnanir bókar þessarar, er Júdakonungur hefir lesið,

fyrir því að þeir hafa yfirgefið mig og fært öðrum guðum reykelsisfórnir, til þess að egna mig til reiði með öllum handaverkum sínum, og heift mín skal upptendrast gegn þessum stað og eigi slokna.

En segið svo Júda-konungi, þeim er sendi yður til þess að ganga til frétta við Drottin: Svo segir Drottinn, Guð Ísraels:

Af því að hjarta þitt hefir komist við og þú auðmýktir þig fyrir Drottni, er þú heyrðir, hvað eg hafði talað gegn þessum stað og íbúum hans, að þeir skyldu verða undrunarefni og formælingar, og af því að þú reifst klæði - þín og grézt frammi fyrir mér, þá hefi eg og bænheyrt þig, segir Drottinn.

Fyrir því vil eg láta þig safnast til feðra þinna, að þú megir komast með friði í gröf þína, og augu þín þurfi ekki að horfa upp á alla þá ógæfu, er eg leiði yfir þennan stað. Fluttu þeir konungi svarið.