Gamla testamentiðSaga
Manasse var tólf ára gamall, þá er hann varð konungur, og fimtíu og fimm ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Hefzíba.
Hann gjörði það sem út var í augum Drottins og drýgði Þannig sömu svívirðingarnar sem þær þjóðir, er Drottinn hafði stökt burt undan Ísraelsmönnum.
Hann reisti af nýju hæðirnar, er Hiskía faðir hans hafði afmáð, reisti Baal ölturu og lét gjöra aséru, eins og Akab Ísraels-konungur hafði gjöra látið, dýrkaði allan himinsins her og þjónaði þeim.
Hann reisti og ölturu í musteri Drottins, því er Drottinn hafði um sagt: Í Jerúsalem vil eg láta nafn mitt búa.
Og hann reisti ölturu fyrir allan himinsins her í báðum forgörðum musteris Drottins.
Hann lét og son sinn ganga gegnum eldinn, för með spár og fjölkyngi og skipaði særingamenn og spásagna; hann aðhafðist margt það, sem út er í augum Drottins, til þess að egna hann til reiði.
Og hann setti Asérulíkneskið, er hann hafði gjöra látið, í musterið, er Drottinn hafði sagt um við Davíð og Salómó, son hans: í þessu húsi og í Jerúsalem, sem eg hefi útvalið af öllum ættkvíslum Ísraels, vil eg láta nafn mitt búa að eilífu.
Og eg vil eigi framar láta Ísrael fara landflótta úr landi því, er eg gaf feðrum þeirra, svo framarlega sem þeir gæta þess að breyta að öllu svo sem eg hefi boðið þeim, að öllu eftir lögmáli því, er Móse þjónn minn fyrir þá lagði.
En þeir hlýddu eigi, og Manasse leiddi þá afvega, svo að þeir breyttu ver en þær þjóðir, er Drottinn hafði eytt fyrir Ísraelsmönnum.
Þá talaði Drottinn fyrir munn þjóna sinna, spámannanna, á þessa leið:
Sakir þess að Manasse Júda-konungur hefir drýgt þessar svívirðingar, sem verri eru en alt það, sem Amóritar aðhöfðust, þeir er á undan honum voru, og einnig komið Júda til að syndga með skurðgoðum sínum,
fyrir því mælir Drottinn, Ísraels Guð, svo: Eg mun leiða ógæfu yfir Jerúsalem og Júda, svo að óma mun fyrir báðum eyrum allra þeirra, er það heyra.
Eg mun draga mælivað yfir Jerúsalem eins og fyrrum yfir Samaríu, og mælilóð, eins og yfir Akabs ætt, og þurka Jerúsalem burt, eins og þegar þurkað er af skál og skálinni síðan - hvolft, þegar þurkað hefir verið af henni.
Og eg mun útskúfa leifum arfleifðar minnar og gefa þá í hendur óvinum þeirra, svo að þeir verði öllum óvinum sínum að bráð og herfangi,
vegna þess að þeir hafa Sjört það, sem út er í augum mínum, og egnt mig til reiði, frá þeim degi, er feður þeirra fóru burt af Egiptalandi, alt fram á þennan dag.
Manasse úthelti og mjög miklu saklausu blóði, þar til er hann hafði fylt Jerúsalem með því enda á milli, auk þeirrar syndar sinnar, að hann kom Júda til að gjöra það sem ilt var í augum Drottins.
En það sem meira er að segja um Manasse og alt, sem hann gjörði, og synd hans, þá er hann drýgði, það er ritað í árbókum Júda-konunga.
Og Manasse lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn í gröf sinni í garði Ússa. Og Amón sonur hans tók ríki eftir hann.
Amón hafði tvo um tvítugt, þá er hann varð konungur, og tvö ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Mesúllemet Harúzdóttir og var frá Jotba.
Og hann gjörði það sem ilt var í augum »Drottins, svo sem gjört hafði Manasse faðir hans,
og fetaði algjörlega í fótspor föður síns og þjónaði skurðgoðunum, sem faðir hans hafði þjónað, og féll fram fyrir þeim;
hann yfirgaf Drottin, Guð feðra sinna, og gekk eigi á vegum Drottins.
Og þjónar Amóns gjörðu samsæri gegn honum og drápu konung í höll hans.
En landslýðurinn drap alla mennina, er gjört höfðu samsæri gegn Amón konungi. Síðan tók landslýðurinn Jósía son hans til konungs eftir hann.
En það sem meira er segja um Amón, það er hann gjörði, það er ritað í árbókum Júda-konunga.
Og hann var grafinn í gröf sinni í garði Ússa. Og Jósía sonur hans tók ríki eftir hann. Fundin lögbókin. Siðbót Jósía.