Síðara Tímóteusarbréf 1Krans-útgáfa

Síðara Tímóteusarbréf 1

Páll postuli Krists Jesú, að vilja Guðs, samkvæmt fyrirheitinu um lífið í Kristi Jesú,

til Tímóteusar, elskaðs sonar. Náð, miskunn og friður frá Guði föður og Kristi Jesú drotni vorum.

Þakkir gjöri eg Guði, sem eg þjóna, eins og forfeður mínir, með hreinni samvisku, svo sem eg án afláts minnist þín í bænum mínum;

og þrái eg nótt og dag að sjá þig, minnugur tára þinna — til þess að eg fyllist gleði; —

er eg rifja upp fyrir mér hina hræsnislausu trú hjá þér, er fyrst bjó í Lóis ömmu þinni og Evníke móður þinni, og eg er sannfærður um að líka býr í þér.

Fyrir þá sök minni eg þig á, að glæða hjá þér þá náðargjöf Guðs, sem í þér býr fyrir yfirlagning handa minna;

því að ekki gaf Guð oss anda hugleysis, heldur anda máttar og kærleiks og stillingar.

Fyrirverð þig því ekki fyrir vitnisburðinn um Drottin vorn, né fyrir mig, bandingja hans, heldur skalt þú ilt þola ásamt með fagnaðarerindinu, eftir mætti Guðs,

sem oss hefir frelsað og kallað heilagri köllun, ekki eftir verkum vorum, heldur eftir eigin fyrirhugun og náð, sem oss var gefin í Kristi Jesú frá eilífum tímum,

en hefir nú birst við opinberun frelsara vors Krists Jesú, sem dauðann afmáði, en leiddi í ljós líf og ódauðleika með fagnaðarerindinu.

Til að boða það er eg settur prédikari og postuli og kennari;

fyrir þá sök líð eg og þetta, en eigi fyrirverð eg mig, því að eg veit á hvern eg hefi fest traust mitt, og eg er sannfærður um, að hann er þess megnugur að varðveita það, sem mér er trúað fyrir, til þess dags.

Halt þú dæmi heilnæmu orðanna, sem þú heyrðir mig flytja, í trúnni og í kærleikanum í Kristi Jesú.

Varðveittu það hið góða, sem þér er trúað fyrir, fyrir heilagan anda, sem í oss býr.

Þú veist þetta, að allir Asíumenn sneru við mér bakinu, í þeirra flokki eru þeir Fýgelus og Hermogenes.

Drottinn veiti miskunn heimili Ónesífórusar, því að oft hresti hann mig, og fyrirvarð sig ekki fyrir fjötur minn;

heldur lét hann sér ant um að leita mín, þegar hann var kominn til Róm, og fann mig; —

gefi Drottinn honum miskunn að finna hjá drotni á þeim degi. — Og þú þekkir manna best, hve mikla þjónustu hann inti af hendi í Efesus.