Þetta er nú í þriðja sinn sem eg kem til yðar. Af munni tveggja eða þriggja votta skal sérhvert mál staðfest verða.
Eg hefi sagt það fyrir og segi það fyrir, eins og þá er eg var nærstaddur í annað sinn, þannig einnig nú fjarstaddur, til þeirra sem áður hafa syndgað, og til allra hinna annarra, að næsta sinn sem eg kem, mun eg ekki hlífa þeim,
með því að þér krefjist sönnunar af Kristi, sem talar í mér, honum, sem ekki er veikur gagnvart yður, heldur er máttugur á meðal yðar.
Því að reyndar var hann krossfestur í veikleika, en hann lifir fyrir Guðs kraft. Og einnig vér erum veikir í honum, en munum þó lifa með honum fyrir Guðs kraft, yður til heilla.
Reynið yður sjálfa, hvort þér eruð í trúnni, prófið yður sjálfa. Eða þekkið þér ekki sjálfa yður, að Jesús Kristur er í yður? Það skyldi vera, að þér stæðust ekki prófið.
En eg vona, að þér komist að raun um, að vér erum ekki þeir, sem ekki standast prófið.
En vér biðjum til Guðs, að þér gjörið ekki neitt ilt, ekki til þess að vér skulum koma fullreyndir í ljós, heldur til þess að þér gjörið hið góða, en vér séum eins og þeir, sem ekki standast prófið.
Því að ekki megnum vér neitt gegn sannleikanum, heldur fyrir sannleikann.
Því að vér gleðjumst þegar vér erum veikir, en þér eruð styrkir. Það sem vér biðjum um, er fullkomnun yðar.
Þess vegna rita eg þetta fjarverandi, til þess að eg nálægur þurfi ekki að beita hörku, samkvæmt því valdi, sem Drottinn hefir gefið mér til uppbyggingar, en ekki til niðurbrots.
Að öðru leyti, bræður, verið glaðir. Verið fullkomnir, áminnið hver annan, verið samhuga, verið friðsamir. Þá mun Guð kærleikans og friðarins vera með yður.
Heilsið hver öðrum með heilögum kossi. Allir hinir heilögu heilsa yður.
Náðin Drottins Jesú Krists og kærleiki Guðs og samfélag heilags anda sé með yður öllum.