Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Halelúja. Syngið Drottni nýjan söng, lofsöngur hans hljómi í söfnuði guðhræddra;
Ísrael gleðjist yfir skapara sínum, synir Zíonar fagni yfir konungi sínum.
Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidans, leika fyrir honum á bumbur og gígjur.
Því að Drottinn hefir þóknun á lýð sínum, hann skreytir hina voluðu með sigri.
Hinir guðhræddu skulu fagna með sæmd, kveða fagnaðarópi í hvítum sínum,
með lofgjörð Guðs í barka sér og tvíeggjað sverð í höndunum,
Ttil þess að framkvæma hefnd á heiðingjunum, hirtingu á þjóðunum,
Stíl þess að binda konunga þeirra með fjötrum, þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,
til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi; það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Halelúja!