Sakaríabók 2Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Sakaríabók 2

Og eg hóf upp augu mín og sá, hvar fjögur horn voru.

Þá spurði eg engilinn, sem við mig talaði: Hvað merkja þessi? Hann svaraði mér: Þetta eru hornin, sem tvístrað hafa Júda, Ísrael og Jerúsalem.

Því næst lét Drottinn mig sjá fjóra smiði,

og er eg spurði: Hvað ætla þessir að gjöra? svaraði hann á þessa leið: Þetta eru hornin, sem tvístruðu Júda svo, að enginn bar höfuð hátt; en þessir eru komnir til þess að skelfa þau, til þess að varpa niður hornum þeirra þjóða, er hófu horn gegn Júdalandi, til þess að tvístra því.

Og eg hóf upp augu mín og sá, hvar maður var; hann hélt á mæliþræði í hendi sér.

Þá spurði eg: Hvert ætlar þú? Hann svaraði mér: Að mæla Jerúsalem, til þess að sjá, hve löng og hve breið hún er.

Þá gekk engillinn, er við mig talaði, alt í einu fram, og annar engill gekk fram á móti honum;

við hann sagði hann: Hlaup þú og tala þú svo til þessa unga manns: Jerúsalem skal liggja opin og ógirt sökum þess fjölda manna og skepna, sem í henni verða,

og eg sjálfur skal vera eins og eldveggur kring um hana, segir Drottinn, og eg skal sýna mig dýrlegan í henni.

Upp, upp, flýið úr norðurlandinu, segir Drottinn, því að eg hefi tvístrað yður í allar áttir, segir Drottinn.

Upp, forðið yður til Zíonar, þér sem búið í Babelborg!

Því að svo hefir Drottinn hersveitanna sagt; vegna heiðurs síns hefir hann sent mig til þjóðanna, sem ræntu yður; því að hver sá, er snertir yður, snertir augastein hans.

Því sjá, eg mun veifa hendi minni yfir þeim, og þá skulu þeir verða þjónum sínum að herfangi og þér viðurkenna, að Drottinn hersveitanna hefir sent mig.

Fagna þú og gleð þig, dóttirin Zíon! Því sjá, eg kem og vil búa mitt í þér, segir Drottinn.

Á þeim degi munu margar þjóðir ganga Drottin á hönd og verða hans lýður og búa mitt á meðal þín, og þú munt viðurkenna, að Drottinn hersveitanna hefir sent mig til þín.

Þá mun Drottinn taka Júda til eignar sem arfleifð sína í hinu heilaga landi og enn útvelja Jerúsalem.

Alt hold veri hljótt fyrir Drottni! Því að hann er risinn upp frá sínum heilaga bústað.