Sakaríabók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Sakaríabók 1

Á áttunda mánuði annars ríkisárs Daríusar kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:

Drottinn var stórreiður feðrum yðar.

Seg því við þá: Svo segir Drottinn hersveitanna: Snúið yður til mín, segir Drottinn hersveitanna, þá mun eg snúa mér til yðar, segir Drottinn hersveitanna.

Verið ekki eins og feður yðar, sem hinir fyrri spámenn ámintu með svofeldum orðum: Svo segir Drottinn hersveitanna: Snúið yður frá yðar vondu breytni og frá yðar vondu verkum!

Feður yðar — hvar eru þeir? og spámennirnir — geta þeir lifað eilíflega?

En orð mín og ályktanir, þau er eg bauð þjónum mínum, spámönnunum, að kunngjöra, hafa þau ekki náð feðrum yðar, svo að þeir sneru við og sögðu: Eins og Drottinn hersveitanna hafði ásett sér að gjöra við oss eftir breytni vorri og verkum vorum, svo hefir hann við oss gjört.

Á tuttugasta og fjórða degi hins ellefta mánaðar, það er mánaðarins sehal, á öðru ríkisári Daríusar, kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:

SEg sá sýn á náttarþeli: mann ríðandi á rauðum hesti, og hafði hann staðnæmst meðal mýrtustrjánna, sem eru í dalverpinu; að baki honum voru rauðir, jarpir og hvítir hestar.

Og er eg spurði: Hverjir eru þessir, herra minn? svaraði engillinn mér, sá er við mig talaði: Eg skal sýna þér, hverjir þeir eru.

Þá tók maðurinn, sem staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, til máls og sagði: Þessir eru þeir, sem Drottinn hefir sent til þess að fara um jörðina.

Þá svöruðu þeir engli Drottinn, er staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, og sögðu: Vér höfum farið um jörðina, og sjá, öll jörðin er í ró og kyrð.

Þá svaraði engill Drottins og sagði: Drottinn hersveitanna, hversu lengi á því fram að fara, að þú miskunnir ig ekki yfir Jerúsalem og Júdaborgir, er þú hefir nu reiður verið í sjötíu ár?

Þá svaraði Drottinn englinum, er við mig talaði, blíðum orðum og huggunarríkum,

og engillinn, sem við mig talaði, sagði við mig: Kunngjör og seg: Svo segir Drottinn hersveitanna: Eg brenn af mikilli vandlæting vegna Jerúsalem og Zíonar

og eg er stórreiður hinum andvaralausu heiðingjum, sem juku á bölið, þá er eg var lítið eitt reiður.

Fyrir því segir Drottinn svo: Eg sný mér aftur að Jerúsalem með miskunnsemi; hús mitt skal verða endurreist í henni, segir Drottinn hersveitanna, og mælivaður skal þaninn verða yfir Jerúsalem.

Kunngjör enn fremur og seg: Svo segir Drottinn hersveitanna: Enn skulu borgir mínar fljóta í gæðum, og enn mun Drottinn hugga Zíon og enn útvelja Jerúsalem.