Gamla testamentiðSaga
Nú gekk Bóas upp í borgarhliðið og settist þar. Þá bar svo við, að lausnarmaðurinn gekk fram hjá, sá er Bóas hafði talað um. Og hann sagði: Kom þú og seztu hér, þú þarna! Og hann sneri þangað og settist niður.
Þá tók hann tíu menn af öldungum borgarinnar og sagði: Setjist hér! Og þeir settust niður.
Síðan sagði hann við lausnarmanninn: Akurland það, er Elímelek frændi okkar átti, hefir Noomí selt, sú sem heim er komin úr Móabslandi.
Og eg hugsaði, að eg skyldi láta þig vita það og segja: Kaup það nú í viðurvist þeirra, er hér eru, og í viðurvist öldunga fólks míns. Ef þú vilt leysa, þá leystu. En ef þú vilt ekki leysa, þá segðu mér frá því, svo að eg viti það. Því að enginn er til, sem getur leyst, nema þú og eg eftir þig. Og hann sagði: Eg ætla að leysa.
Þá sagði Bóas: Um leið og þú kaupir landið af Noomí, hefir þú og keypt Rut hina móabítísku, ekkju hins framliðna, til þess að reisa nafn hins framliðna á arfleifð hans.
Þá sagði lausnarmaðurinn: Eg get ekki leyst það handa mér; því að þá kynni eg að spilla arfleifð minni. Leys þú handa þér það, sem eg átti að leysa, því að eg get ekki leyst það.
En það var fyrrum siður Í Ísrael við brigðir og skifti, til þess að staðfesta allar gjörðir, að annar tók af sér skóinn og fékk hinum. Þetta var vottfesting í Ísrael.
Þá sagði lausnarmaðurinn við Bóas: Kaup þú það handa þér! og tók af sér skóinn.
En Bóas sagði við öldungana og alt fólkið: Þér eruð í dag vottar að því, að eg hefi keypt af Noomí alt það, sem Elímelek átti, svo og alt það, sem þeir Kiljón og Mahlón áttu.
Einnig hefi eg keypt Rut hina móabitísku, ekkju Mahlóns, mér að konu, til þess að reisa nafn hins framliðna á arfleifð hans, svo að nafn hins framliðna upprætist eigi meðal bræðra hans, og úr staðar hliði hans; — þér eruð vottar þess í dag.
Þá sagði alt fólkið, sem var í hliðinu og öldungarnir: Vér erum vottar að því. Drottinn gjöri konuna, sem í hús þitt kemur, slíka sem þær voru Rakel og Lea, er báðar reistu Ísraels hús. Veitist þér vald í Efrata og verðir þú frægur í Betlehem.
Og verði hús þitt sem hús Perez, sem Tamar fæddi Júda, fyrir afsprengi það, sem Drottinn gefur þér við þessari ungu konu.
Síðan gekk Bóas að eiga Rut, og hún varð kona hans; og hann gekk inn til hennar, og Drottinn veitti henni getnað, og ól hún son.
Þá sögðu konurnar við Noomí: Lofaður sé Drottinn, sem eigi hefir látið þig bresta lausnarmann í dag, svo að nafn hans mun nefnt verða í Ísrael.
Hann mun verða huggun þín og ellistoð, því að tengdadóttir þín, sem elskar þig, hefir alið hann — hún, sem er þér betri en sjö synir.
Og Noomí tók barnið og lagði það á skaut sér og varð fóstra þess.
Og grannkonurnar gáfu honum nafn og sögðu: Noomí er fæddur sonur! og nefndu hann Óbeð; hann var faðir Ísaí, föður Davíðs.
Þetta er ættartala Perez: Perez gat Hezron,
og Hezron gat Ram og Ram gat Ammínadab,
og Ammínadab gat Nahson og Nahson gat Salmón,
og Salmón gat Bóas og Bóas gat Óbeð,
og Óbeð gat Ísaí og Ísaí gat Davíð.