Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Betri er þurr brauðbiti með ró af en full hús af fórnarkjöti með deilum.
Hygginn þræll verður drotnari yfir spíttum syni, og hann tekur erfðahlut með bræðrunum.
Deiglan er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyrir gullið, en Drottinn prófar hjörtun.
Tllmennið gefur gaum að fláræðis-vörum; lygin hlýðir á glæpa-tungu.
Sá, sem gjörir gys að fátækum, óvirðir þann, er skóp hann, og sá, sem gleðst yfir ógæfu, sleppur ekki óhegndur.
Barnabörnin eru kóróna öldunganna, og feðurnir eru heiður barnanna.
Ekki hæfa heimskum manni stóryrði, hve miklu síður göfgum manni lygavarir.
Mútan er gimsteinn í augum þess, er hana fær; hvert sem maður snýr sér með hana, kemur hann sínu fram.
Sá, sem breiðir yfir bresti, eftir kærleika, en sá, sem ýfir upp sök, veldur vinaskilnaði.
Á vítur fá meira á hygginn mann en hundrað högg á heimskingja.
Uppreisnarmaðurinn hyggur á út eitt, en grimmur sendiboði mun sendur verða móti honum.
Betra er fyrir mann að mæta birnu, sem rænd er húnum sínum, heldur en heimskingja í flónsku hans.
Sá, sem launar gott með illu, frá hans húsi víkur ógæfan eigi.
Þegar deila byrjar, er sem tekin sé úr stifta, lát því af þrætunni áður en rifrildi hefst.
Sá sem sekan sýknar og sá sem saklausan sakfellir, þeir eru báðir Drottinn andstygð.
Hvað stoða peningar í hendi heimskingjans, til þess að kaupa speki, þar sem vitið er ekkert?
Vinur elskar ætíð og í nauðum fæðist hann sem bróðir.
Óvitur maður er sá, er til handsala gengur, sá, sem gengur í ábyrgð fyrir náunga sinn.
Sá elskar yfirsjón, sem þrætu elskar; sá, sem háar gjörir dyr sínar, sækist eftir hruni.
Baugsnúið hjarta öðlast enga gæfu, og sá, sem hefir fláráða tungu, hrapar í ógæfu.
Sá, sem getur af sér heimskingja, honum verður það til mæðu, og faðir glópsins fagnar ekki.
Glatt hjarta veitir góða heilsubót, en dapurt geð skrælir beinin.
Hinn óguðlegi þiggur mútur á laun, til þess að beygja leiðir réttvísinnar.
Hygginn maður hefir vizkuna fyrir framan sig, en augu heimskingjans eru úti á heimsenda.
Heimskur sonur er föður sínum til sorgar og þeirri til angurs, er ól hann.
Það eitt, að sekta saklausan, er ekki gott, en að berja tignarmenni, tekur þó út yfir.
Fámálugur maður er hygginn og geðrór maður er skynsamur.
Afglapinn getur jafnvel álitist vitur, ef hann þegir, hygginn, ef hann lokar vörunum.