Orðskviðirnir 16Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Orðskviðirnir 16

Fyrirætlanir hjartans eru á mannsins valdi, en svar tungunnar kemur frá Drottni.

Manninum þykja allir sínir vegir hreinir, en Drottinn prófar hugarþelið.

Fel þú Drottinn verk þín, þá mun áformum þínum framgengt verða.

Alt hefir Drottinn skapað til síns ákveðna marks, svo og guðleysingjann til óheilladagsins.

Sérhver hrokafullur maður er Drottinn andstygð; hér er höndin upp á það: hann sleppur ekki óhegndur!

Með elsku og trúfesti er friðþægt fyrir misgjörð, og fyrir ótta Drottins forðast menn hið illa.

Þegar Drottinn hefir þóknun á breytni einhvers manns, þá sættir hann og óvini hans við hann.

Betra er lítið með réttu en miklar tekjur með röngu.

Hjarta mannsins upphugsar veg hans, en Drottinn stýrir gangi hans.

Goðsvar er á vörum konungsins, í dómi mun munni hans ekki skeika.

Rétt reizla og metaskálar koma frá Drottni, hans verk eru allir vogarsteinar Í sjóði.

Að fremja ranglæti er konungum andstygð, því að hásætið staðfestist fyrir réttlæti.

Réttlátar varir eru yndi konunga, og þeir elska þann, er talar hreinskilni.

Konungsreiði er sem sendiboðar dauðans, en vitur maður sefar hana.

Í mildilegu augnaráði konungs er líf, og hylli hans er sem vorregns-ský.

Hversu miklu betra er að afla sér vizku en gulls og ákjósanlegra að afla sér hygginda en silfurs.

Braut hreinskilinna er að forðast út; að varðveita sálu sína er að gæta breytni sinnar.

Drambsemi er undanfari tortímingar og oflæti veit á fall.

Betra er að vera lítillátur með auðmjúkum en að skifta herfangi með dramblátum.

Sá, sem gefur gætur að orðinu, hreppir hamingju, og sæll er sá, sem treystir Drottni.

Sá, sem er. vitur í hjarta, verður hygginn kallaður, og sætleiki varanna eykur fræðslu.

Lffslind er hvgnin þeim, sem hana á, en ögun afglapanna er þeirra eigin flónska.

Hjarta spekingsins gjörir munn hans hygginn og eykur fræðsluna á vörum hans.

Vingjarnleg orð eru hunangsseimur, sæt fyrir sálina, lækning fyrir beinin.

Margur vegurinn virðist greiðfær, en endar þó á helslóðum.

Hungur erfiðismannsins erfiðar með honum, því að munnur hans rekur á eftir honum.

Varmennið grefur óheillagröf, og á vörum hans er sem brennandi eldur.

Vélráður maður kveikir illdeilur og rógberinn veldur vinaskilnaði.

Ofbeldismaðurinn ginnir náunga sinn og leiðir hann á vondan veg.

Sá, sem lokar augunum, upphugsar vélræði, sá, sem kreistir saman varirnar, er albúinn til ills.

Gráar hærur eru heiðurskóróna; á vegi réttlætis öðlast menn hana.

Sá, sem seinn er til reiði, er betri en kappi, og sá, sem stjórnar geði sínu, betri en sá, sem vinnur borgir.

Hlutkestinu er varpað í barminum, en allir úrskurðir þess koma frá Drottni.