Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Vitur sonur hlýðir umvöndun föður síns, en spottarinn sinnir engum átölum.
Maðurinn nýtur góðs af ávexti munnsins, en svikarana þyrstir í ofbeldi.
Sá, sem geymir munns síns, varðveitir líf sitt, en glötun er búin þeim, er ginið glennir.
Sál letingjans girnist og fær ekki, en sál hinna iðnu mettast ríkulega.
Réttlátur maður hatar fals, en hinn óguðlegi fremur skömm og svívirðu.
Réttlætið verndar grandvara breytni, en guðleysið steypir syndaranum.
Einn þykist ríkur, en á þó ekkert, annar læzt vera fátækur, en á þó mikinn auð.
Auðæfi mannsins eru lausnargjald fyrir líf hans, en hinn fátæki þarf ekki að hlýða á nema hótun.
Ljós réttlátra logar skært, en á lampa óguðlegra sloknar.
Með hroka vekja menn aðeins þrætur, en hjá ráðþægnum mönnum er vizka.
Skjótfenginn auður minkar, en sá, sem safnar smátt og smátt, verður ríkur.
Langdregin eftirvænting gjörir hjartað sjúkt, en uppfylt ósk er lífstré.
Sá, sem fyrirlítur áminningarorð, býr sér glötun, en sá, sem óttast boðorðið, hlýtur umbun.
Kenning hins vitra er lífslind, til þess að forðast snöru dauðans.
Góðir vitsmunir veita hylli, en vegur svikaranna leiðir í glötun.
Kænn maður gjörir alt með skynsemd, en heimskinginn breiðir út vitleysu.
Óguðlegur sendiboði steypir í ógæfu, en trúr sendimaður er meinabót.
Fátækt og smán hlýtur sá, er lætur áminning sem vind um eyrun þjóta; en sá, sem tekur umvöndun, verður heiðraður.
Uppfylt ósk er sálunni sæt, en að forðast út er heimskingjunum andstygð.
Haf umgengni við vitra menn, þá verður þú vitur, en illa fer þeim, sem leggur lag sitt við heimskingja.
Óhamingjan eftir syndarana, en gæfan nær hinum réttlátu.
Góður maður leifir barnabörnum sínum arf, en eigur syndarans eru geymdar hinum réttláta.
Nýbrotið land fátæklinganna gefur mikla fæðu, en mörgum er burtu kipt fyrir ranglæti sitt.
Sá, sem sparar vöndinn, hatar son sinn, en sá, sem elskar hann, agar hann snemma.
Hinn réttláti etur nægju sína, en kviður óguðlegra líður skort.