Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Sá, sem elskar aga, elskar þekking, en sá, sem hatar umvöndun, er heimskur.
Hinn góði hlýtur velþóknun af Drottni, en hrekkvísan mann fyrirdæmir hann.
Enginn maður nær fótfestu með óguðleika, en rót hinna réttlátu mun eigi bifast.
Væn kona er kóróna manns síns, en vond kona er sem rotnun í beinum hans.
Hugsanir réttlátra stefna að rétti, en ráðagjörðir óguðlegra að svikum.
Orð óguðlegra brugga banaráð, en munnur hreinskilinna frelsar þá.
Óguðlegir kollsteypast og eru eigi framar til, en hús réttlátra stendur.
SManninum verður hrósað eftir vitsmunum hans, en sá, sem er rangsnúinn í hjarta, verður fyrirlitinn.
Betra er að láta lítið yfir sér og hafa þjón en að berast mikið á og hafa ekki ofan í sig.
Hinn réttláti er nærgætinn um þörf skepna sinna, en hjarta óguðlegra er hart.
Sá, sem yrkir land sitt, mettast af brauði, en sá, sem sækist eftir hégómlegum hlutum, er óvitur.
Hinn óguðlegi ágirnist feng hinna vondu, en rót réttlátra er varanleg.
Yfirsjón varanna er ilt snara, en hinn réttláti bjargast úr nauðum.
Af ávexti munnsins mettast maðurinn gæðum, og það, sem hendur hans hafa öðrum gjört, kemur aftur
Afglapanum finst sinn vegur réttur, yfir hann. en vitur maður hlýðir á ráð.
Gremja afglapans kemur þegar í ljós, en kænn maður dylur smán sína.
Sá, sem segir sannleikann hispurslaust, mælir fram það, sem rétt er, en falsvotturinn svik.
Þvaður sumra manna er sem spjóts-stungur, en tunga hinna vitru græðir.
Sannmálar varir munu ávalt standast, en lygin tunga aðeins augnablik.
Yfir svikum búa þeir, er út hrugga; en gleði valda þeir, er ráða til friðar.
Réttlátum manni ber aldrei böl að hendi, en óhamingja hleðst á óguðlega.
Lygavarir eru Drottinn andstygð, en þeir, sem sannleik iðka, eru yndi hans.
Kænn maður fer dult með þekking sína; en hjarta heimskingjanna fer hátt með flónsku sína.
Hönd hinna iðnu mun drotna, en hangandi höndin verður vinnuskyld.
Hugsýki beygir manninn, en vingjarnlegt orð gleður hann.
Hinn réttláti kýs sér haglendi sitt, en vegur óguðlegra leiðir þá í villu.
Letinginn nær ekki villibráðinni, en iðnin er manninum dýrmætur auður.
Á vegi réttlætisins er líf, en glæpaleiðin liggur út í dauðann.