Opinberunarbókin 8Krans-útgáfa

Opinberunarbókin 8

Og er það lauk upp sjöunda innsiglinu, varð þögn á himni hér um bil hálfa stund.

Og eg sá englana sjö, sem stóðu frammi fyrir Guði, og þeim voru fengnar sjö básúnur.

Og annar engill kom og nam staðar við altarið; hann hélt á gullnu glóðarkeri, og honum var fengið mikið af reykelsi, til þess að hann skyldi leggja það við bænir allra hinna heilögu á gullaltarið, sem var frammi fyrir hásætinu.

Og reykurinn af reykelsinu steig upp með bænum hinna heilögu úr hendi engilsins frammi fyrir Guði.

Og engillinn tók glóðarkerið og fylti það með eldi af altarinu, og varpaði ofan á jörðina, og það komu þrumur og raustir og eldingar og landskjálfti.

Og englarnir sjö, sem héldu á básúnunum sjö, bjuggu sig til að blása.

Og hinn fyrsti básúnaði, og þá kom hagl og eldur, blóði blandað, og því var varpað ofan á jörðina, og þriðjungur jarðarinnar eyddist í loga, og þriðjungur trjánna eyddist í loga, og alt grængresi eyddist í loga.

Og annar engillinn básúnaði, og var sem miklu fjalli, logandi af eldi, væri varpað í hafið, og þriðjungur hafsins varð blóð,

og þriðjungurinn dó af skepnunum í hafinu, sem lífi voru gæddar, og þriðjungur af skipunum fórst.

Og þriðji engillinn básúnaði, og stór stjarna féll af himni, logandi sem blys, og hún féll ofan á þriðjung fljótanna og á lindir vatnanna.

Og nafn stjörnunnar er nefnt Remma, og þriðjungur vatnanna varð að remmu, og margir menn biðu bana af vötnunum, af því að þau voru beisk orðin.

Og fjórði engillinn básúnaði, og lostinn varð þriðjungur sólarinnar og þriðjungur tunglsins og þriðjungur stjarnanna, til þess að þriðjungur þeirra yrði myrkur, og dagurinn misti þriðjung birtu sinnar og nóttin sömuleiðis.

Og eg sá og heyrði örn einn fljúga um miðhimininn, segjandi hárri röddu: Vei, vei, vei þeim, sem á jörðu búa, af völdum lúðurhljómanna, sem eftir eru, englanna þriggja, sem eiga eftir að básúna.