Opinberunarbókin 3Krans-útgáfa

Opinberunarbókin 3

Og engli kirkjunnar í Sardes skalt þú rita: Þetta segir sá, sem hefir þá sjö anda Guðs og stjörnurnar sjö. Eg þekki verkin þín, að þú lifir að nafninu, en ert dauður.

Vakna þú og styrk hið annað, sem ætlar að deyja; því að eigi hefi eg reynt verk þín fullkomin að vera fyrir Guði mínum.

Minst þú því, hvernig þú tókst á móti og heyrðir, og varðveit það og gjör iðrun. Ef þú nú vakir ekki, mun eg koma eins og þjófur, og þú munt alls ekki vita, á hverri stundu eg kem yfir þig.

En þú átt fáein nöfn í Sardes, sem ekki hafa saurgað klæði sín, og þeir munu ganga með mér í hvítum klæðum, því að þeir eru maklegir.

Sá er sigrar, hann skal þannig skrýðast hvítum klæðum, og eigi mun eg afmá nafn hans úr lífsbókinni, og eg mun kannast við nafn hans fyrir föður mínum og fyrir englum hans.

Hver sem eyra hefir, hann heyri, hvað andinn segir kirkjunum.

Og engli kirkjunnar í Fíladelfíu skalt þú rita: Þetta segir sá heilagi, sá sanni, sem hefir lykil Davíðs, hann sem lýkur upp svo að enginn læsir og læsir svo að enginn lýkur upp.

Eg þekki verkin þín, — sjá, eg hefi látið opnar dyr standa fyrir þér, sem enginn getur lokað, — að þú hefir lítinn mátt, en hefir varðveitt orð mitt og ekki afneitað nafni mínu.

Sjá, eg skal láta nokkura af samkundu Satans, er segja sjálfa sig vera Gyðinga, en eru það ekki, heldur ljúga, — eg skal láta þá koma og láta þá kasta sér fyrir fætur þér, og láta þá vita, að eg hefi elskað þig.

Af því að þú hefir varðveitt orðið mitt um þolinmæðina, mun eg og varðveita þig frá reynslustundinni, sem koma mun yfir alla heimsbygðina, til að reyna þá sem á jörðinni búa.

Eg kem skjótt; haltu fast því sem þú hefir, til þess að enginn taki kórónu þína.

Sá er sigrar, hann mun eg gjöra að stólpa í musteri Guðs míns, og hann skal þaðan aldrei út fara; og eg mun á hann rita nafn Guðs míns og nafn borgar Guðs míns, hinnar nýju Jerúsalem, er kemur af himni ofan frá Guði mínum, og nafnið mitt, hið nýja.

Hver sem eyra hefir, hann heyri, hvað andinn segir kirkjunum.

Og engli kirkjunnar í Laódíkeu skalt þú rita: Þetta segir hann sem er Amen, votturinn trúi og sanni, upphaf Guðs skepnu:

Eg þekki verkin þín, að þú ert hvorki kaldur né heitur; betur að þú værir kaldur eða heitur.

Því er það: af því að þú ert hálfvolgur, og ert hvorki heitur né kaldur, mun eg skyrpa þér út af mínum munni, —

af því að þú segir: Eg er ríkur og er orðinn auðugur og þarfnast einskis, — og þú veist ekki, að þú ert vesalingur og aumingi og fátækur og blindur og nakinn.

Eg ræð þér, að þú kaupir af mér gull, brent í eldi, til þess að þú verðir auðugur, og hvít klæði, til að skýla þér með, og eigi komi í ljós vanvirða nektar þinnar, og smyrsl að smyrja með augu þín, til þess að þú verðir sjáandi.

Alla þá sem eg elska, þá tyfta eg og aga; ver því kostgæfinn og gjör iðrun.

Sjá, eg stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum, þá mun eg fara inn til hans, og neyta kvöldverðar með honum og hann með mér.

Sá er sigrar, hann mun eg láta sitja hjá mér í hásæti mínu, eins og eg sjálfur sigraði og settist hjá mínum föður í hásæti hans.

Hver sem eyra hefir, hann heyri, hvað andinn segir kirkjunum.