Og hann sýndi mér móðu lífsvatnsins, skínandi sem krystall, og rann hún frá hásæti Guðs og lambsins,
á miðju stræti borgarinnar. Og beggja vegna móðunnar var lífsins tré, sem ber tólf sinnum ávöxt, á mánuði hverjum gefur það ávöxt sinn, og blöð trésins eru til lækningar þjóðunum.
Og engin bölvun mun framar til vera, og hásæti Guðs og lambsins mun í henni vera, og þjónar hans munu honum þjóna.
Og þeir munu sjá ásjónu hans, og nafn hans mun vera á ennum þeirra.
Og nótt mun ekki framar til vera, og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá, og þeir munu ríkja um aldir alda.
Og hann sagði við mig: Þessi orð eru áreiðanleg og sönn; og Drottinn, Guð anda spámannanna, sendi engil sinn, til að sýna þjónum sínum það sem verða á innan skamms.
Sjá, eg kem skjótt. Sæll er sá, sem varðveitir spádómsorð þessarar bókar.
Og eg, Jóhannes, er sá sem heyrði og sá þetta, og er eg hafði heyrt það og séð, féll eg niður til að tilbiðja fyrir fótum engilsins, sem sýndi mér þetta.
Og hann segir við mig: Varastu þetta! Eg er samþjónn þinn og bræðra þinna, spámannanna, og þeirra sem varðveita orð þessarar bókar. Tilbið þú Guð.
Og hann segir við mig: Innsigla þú ekki spádómsorð þessarar bókar, því að tíminn er í nánd.
Hinn rangláti haldi áfram að fremja ranglæti, og hinn saurugi saurgi sig áfram, og hinn réttláti stundi áfram réttlæti, og hinn heilagi helgist áfram.
Sjá, eg kem skjótt, og launin hefi eg með mér, til að gjalda hverjum og einum eins og verk hans er.
Eg er Alfa og Ómega, hinn fyrsti og hinn síðasti, upphafið og endirinn.
Sælir eru þeir sem þvo skikkjur sínar, til þess að þeir geti fengið aðgang að lífsins tré, og megi ganga um hliðin inn í borgina.
Úti gista hundarnir og töframennirnir og frillulífismennirnir, og manndrápararnir og skurðgoðadýrkendurnir, og hver sem elskar og iðkar lygi.
Eg, Jesús, hefi sent engil minn, til að votta fyrir yður þessa hluti í kirkjunum. Eg er rótarkvistur og kyn Davíðs, stjarnan skínandi, morgunstjarnan.
Og andinn og brúðurin segja: Kom þú! Og sá, sem heyrir, segi: Kom þú! Og sá sem þyrstur er, hann komi. Hver sem vill, hann taki ókeypis lífsins vatn.
Eg votta fyrir hverjum þeim manni, sem heyrir spádómsorð þessarar bókar, að leggi nokkur við þau, mun Guð á hann leggja þær plágur, sem um er ritað í þessari bók.
Og taki nokkur af orðum spádómsbókar þessarar, þá mun Guð burt taka hlut hans í tré lífsins og í borginni helgu, sem um er ritað í þessari bók.
Sá, sem þetta vottar, segir: Já, eg kem skjótt. Amen. Kom þú, Drottinn Jesú!
Náðin Drottins Jesú sé með hinum heilögu. Amen.