Gamla testamentiðLögmálið
En Móse svaraði og sagði: Sjá, þeir munu eigi trúa mér og eigi• skipast við orð mín, heldur segja: Guð hefir ekki hirzt þér!
Þá Sagði Drottinn við hann: Hvað er það, sem þú hefir í hendi þér? Hann svaraði: Stafur er það.
Hann sagði: Kasta þú honum tl jarðar! Og hann kastaði honum til jarðar, og stafurinn varð að höggormi, og hrökk Móse undan honum.
Þá sagði Drottinn við Móse: Rétt þú út hönd þína og gríp um ormshalann, — þá rétti hann út hönd sína og tók um hann, og varð hann þá aftur að staf í hendi hans —
að þeir megi trúa því, að Drottinn, Guð feðra þeirra, Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs hafi birzt þér.
Og Drottinn sagði enn fremur við hann: Sting hendi þinni í barm þér! Og hann stakk hendi sinni í barm sér; en er hann tók hana út aftur, var höndin orðin líkþrá og hvít sem snjór.
Og hann sagði: Sting aftur hendi þinni í barm þér. Og hann stakk hendinni aftur í barm sér; en er hann tók hana aftur út úr barminum, var hún aftur orðin sem annað hold hans.
Vilji þeir nú ekki trúa þér eða skipast við hina fyrri jarteinina, þá munu þeir skipast við hina síðari.
En ef þeir vilja hvorugri þessari jartein trúa eða skipast láta við orð þín, þá skalt þú taka vatn úr ánni og ausa því upp á þurt land, og mun þá það vatn, er þú tekur úr ánni, verða að blóði á þurlendinu.
Þá sagði Móse við Drottin: Æ, Drottinn, aldrei hefi eg málsnjall maður verið, hvorki áður fyr né heldur síðan þú talaðir við þjón þinn, því að mér er tregt um málfæri og tungutak.
En Drottinn sagði við hann: Hver gefur manninum málið, eða hver gjörir hann mállausan eða daufan eða skygnan eða blindan? er það ekki eg, Drottinn, sem gjöri það?
Far nú, eg skal vera með munni þínum og kenna þér, hvað þú skalt mæla.
En hann svaraði: Æ, Drottinn, send þú einhvern annan.
Þá reiddist Drottinn Móse og sagði: Þá er Aron bróðir þinn, Levítinn! eg veit að hann er vel máli farinn. Og meira að segja, sjá, hann fer til móts við þig, og þá er hann sér þig, mun hann fagna í hjarta sínu.
Þú skalt tala til hans og leggja honum orðin í munn, en eg mun vera með munni þínum og munni hans og kenna ykkur, hvað þið skuluð gjöra.
Hann skal tala fyrir þig til lýðsins, og hann skal vera þér sem munnur, en þú skalt vera honum sem Guð.
staf þennan skalt þú hafa í hendi þér; með honum skalt þú jarteinirnar gjöra.
Síðan fór Móse heim aftur til Jetró tengdaföður síns og mælti til hans: Leyf mér að fara og hverfa aftur til ættbræðra minna, sem á Egiptalandi eru, svo að eg viti, hvort þeir eru enn á lífi. Og Jetró sagði við Móse: Far þú í friði!
Og Drottinn sagði við Móse í Midíanslandi: Far þú og hverf aftur til Egiptalands, því að þeir eru allir dauðir, sem leituðu eftir lífi þínu.
Þá tók Móse konu sína og sonu, setti þau upp á asna og fór aftur til Egiptalands; og Móse tók Guðs staf í hönd sér.
Og Drottinn sagði við Móse: Sjá svo til, þá er þú kemur aftur í Egiptaland, að þú fremjir öll þau undur fyrir Faraó, sem eg hefi gefið þér vald til; en eg mun herða hjarta hans, svo að hann mun eigi leyfa fólkinu að fara.
En þú skalt segja við Faraó: Svo segir Drottinn: Ísraelslýður er minn frumgetinn sonur.
Eg segi þér: lát son minn fara, að hann megi þjóna mér; en viljir þú hann eigi lausan láta, sjá, þá skal eg deyða frumgetinn son þinn.
En á leiðinni bar svo við í gistingarstað einum, að Drottinn réðst í móti honum og vildi deyða hann.
Þá tók Zippóra hvassan stein og afsneið yfirhúð sonar síns og lagði fyrir fætur honum og sagði: Þú ert sannlega minn blóðbrúðgumi!
Þá slepti hann honum; en »blóðbrúðgumi« sagði hún vegna umskurnarinnar.
Og Drottinn sagði við Aron: Far þú út í eyðimörkina til móts við Móse. Og hann fór og mætti honum á Guðs fjalli og mintist við hann.
Sagði Móse þá Aroni öll orð Drottins, er hann hafði fyrir hann lagt, og allar þær jarteinir, sem hann hafði boðið honum að gjöra.
Þeir Móse og Aron fóru nú og stefndu saman öllum öldungum Ísraelsmanna;
og flutti Aron öll þau orð, er Drottinn hafði mælt við Móse, og hann gjörði táknin í augsýn fólksins.
Og fólkið trúði; og er þeir heyrðu að Drottinn hafði vitjað Ísraelsmanna og litið á eymd þeirra, féllu þeir fram og tilbáðu.