Gamla testamentiðLögmálið
Og af bláa purpuranum, rauða purpuranum og skarlatinu gjörðu þeir glitklæði til embættisgjörðar í helgidóminum; og þeir gjörðu hin helgu klæði Arons, svo sem Drottinn boðið Móse.
Hann bjó til hökulinn af gulli, bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og tvinnaðri baðmull.
Þeir heittu út gullið íþynnur, en hann skar þynnurnar í þræði til að vela þá inn í bláa purpurann, rauða purpurann, skarlatið og baðmullina með forkunnarlegu hagvirki.
eir gjörðu axlarhlýra á hökulinn og voru þeir festir við hann; á báðum endum var hann festur við þá.
Og hökullindinn, sem á honum var til að gyrða hann að sér, var áfastur honum og með sömu gerð: af gulli, bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og tvinnaðri baðmull, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
Og þeir greyptu sjóamsteina inn í umgjarðir af gulli og grófu á þá nöfn Ísraels sona með innsiglisgrefti.
Festi hann þá á axlarhlýra hökulsins, svo að þeir væru minnissteinar fyrir Ísraelsmenn, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
á bjó hann til brjóstskjöldinn, gjörðan með listasmíði og með sömu gerð og hökullinn, af gulli, bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og tvinnaðri baðmull.
B Var hann ferhyrndur; gjörðu þeir brjóstskjöldinn tvöfaldan; var hann spannarlangur og spannarbreiður og tvöfaldur.
Og þeir settu hann fjórum steinaröðum: eina röð af karneól, tópas og smaragði; var það fyrsta röðin;
önnur röðin: karbunkull safír og jaspis;
þriðja röðin: hýasint, agat og ametýst;
og fjórða röðin: krýsólít, sjóam og onýx; voru þeir greyptir í gutlumgjarðir, hver á sínum stað.
Og steinarnir voru tólf, eftir nöfnum Ísraels sona, og með nöfnum þeirra; voru þeir grafnir með innsiglisgrefti og var sitt nafn á hverjum þeirra eftir þeim tólf kynkvíslum.
Og þeir gjörðu festar til brjóstskjaldarins, snúnar eins og fléttur, af skíru gulli.
Þeir gjörðu og tvær umgjarðir af gulli og tvo gullhringa, og þessa tvo hringa festu þeir á tvö horn brjóstskjaldarins;
festu síðan báðar gullflétturnar í þessa tvo hringa á hornum brjóstskjaldarins.
En tvo enda beggja snúnu festanna festu þeir við umgjarðirnar tvær og festu þær við axlarhlýra hökulsins, á hann framanverðan.
Þá gjörðu þeir enn tvo hringa af gulli og festu þá í tvö horn brjóstskjaldarins, innanvert í þá brúnina, sem að höklinum vissi.
Og enn gjörðu þeir tvo hringa af gulli og festu þá á báða axlarhlýra hökulsins, neðan til á hann framanverðan, þar sem hann var tengdur saman, fyrir ofan hökullindann.
Og knýttu þeir brjóstskjöldinn með hringum hans við hökulhringana með snúru af bláum purpura, svo að hann lægi fyrir ofan hökullindann og brjóstskjöldurinn losnaði ekki við hökulinn, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
Síðan gjörði hann hökulmöttulinn; var hann ofinn og allur af bláum purpura;
og var höfuðsmátt möttulsins á honum miðjum, eins og á brynju, og hálsmálið faldað með borða, svo að ekki skyldi rifna út úr.
Á möttulfaldinum gjörðu þeir granatepli af bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og tvinnaðri baðmull.
Þeir gjörðu og bjöllur af skíru gulli og festu bjöllurnar millum granateplanna á möttulfaldinum alt í kring, á millum granateplanna,
svo að fyrst kom bjalla og Slanatepli og þá aftur bjalla og granatepli alt í kring á möttulfaldinum, bl þjónustugjörðar, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
Þá gjörðu þeir kyrtlana handa Aroni og sonum hans af baðmull og voru þeir ofnir;
sömuleiðis vefjarhöttinn af baðmull og höfuðdúkana prýðilegu af baðmull og línbrækurnar af tvinnaðri baðmull,
og beltið af tvinnaðri baðmull, bláum purpura, rauðum purpura og skarlati, glitofið, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
Síðan gjörðu þeir spöngina, hið helga ennishlað, af skíru gulli og letruðu á hana með innsiglisgrefti: »Helgaður Drottni«.
Og þeir festu við hana snúru af bláum purpura til að festa hana á vefjarhöttinn ofanverðan, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
Þannig var nú lokið öllu verki við búð samfundatjaldsins og gjörðu Ísraelsmenn alt, sem Drottinn hafði boðið Móse — svo gjörðu þeir.
Síðan fluttu þeir búðina til Móse: tjaldið með öllum áhöldum þess, krókana, þiljuborðin, slárnar, stólpana og undirstöðurnar,
þakið úr rauðlituðu hrútskinnunum, þakið úr sækýrskinnunum og fortjaldsdúkbreiðuna,
sáttmálsörkina, stengurnar og arkarlokið,
borðið með öllum þess áhöldum og skoðunarbrauðin,
gullljósastikuna með lömpum, lömpunum, er raða skyldi, öll áhöld hennar og olíu ljósastikunnar,
gullaltarið, smurningarolíuna, ilmreykelsið og dúkbreiðuna fyrir tjalddyrnar,
eiraltarið ásamt eirgrindinni, stengur þess og öll áhöld, kerið og stétt þess,
forgarðstjöldin, stólpa hans og undirstöður, dúkbreiðuna fyrir hlið forgarðsins, stög þau og hæla, sem þar til heyra, og öll þau áhöld, sem heyra til þjónustugjörð í búðinni, í samfundatjaldinu,
glitklæðin til embættisgjörðar í helgidóminum, hin helgu klæði Arons prests og prestsþjónustuklæði sona hans.
Unnu Ísraelsmenn alt verkið í alla staði svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
Og Móse leit yfir alt Verkið og sjá: þeir höfðu unnið það; svo sem Drottinn hafði fyrir lagt, Svo höfðu þeir gjört það; og Móse blessaði þá.