Gamla testamentiðLögmálið
Já gjörði hann brennifórnaraltarið af akasíuviði; það var fimm álna langt og fimm álna breitt, ferhyrnt og þriggja álna hátt.
Og hann gjörði hornin á því upp af fjórum hyrningum þess; þau horn voru áföst við það; og hann eirlagði það.
Og hann gjörði áhöld, sem altarinu skyldu fylgja: kerin, eldspaðana, fórnarskálirnar. soðkrókana og eldpönnurnar; öll áhöld þess gjörði hann af eiri.
Enn fremur gjörði hann um altarið eirgrind, eins og riðið net, fyrir Meðan umgjörð þess undir niðri alt upp að miðju þess.
Og hann steypti fjóra hringa í fjögur horn eirgrindarinnar, til að smeygja í stöngunum.
En stengurnar gjörði hann af akasíuviði og eirlagði þær.
Og hann smeygði stöngunum í hringana á hliðum altarisins til að bera það á; hann gjörði það af borðum, holt að innan.
Því næst gjörði þann eirkerið með eirslétt — úr speglum kvenna þeirra, er gegndu Þjónustu við dyr samfundatjaldsins.
Og hann gjörði forgarðinn þannig: á suðurhliðinni voru tjöld fyrir forgarðinum úr tvinnaðri baðmull, hundrað álna löng,
með tuttugu stólpum og tuttugu undirstöðum af eiri, en naglar í stólpunum Og hringrandir á þeim voru af silfri.
Á norðurhliðinni voru og hundrað alna tjöld með tuttugu stólpum og tuttugu undirstöðum af eiri, en Uaglarnir í stólpunum og hringrandirnar á þeim voru af silfri.
Að Vestanverðu voru fimtíu álna löng tjöld með tíu stólpum og tíu undirstöðum, en naglarnir í stólpunum og hringrandirnar á þeim voru af silfri.
Og að austanverðu, mót uppkomu sólar, voru fimtíu álna tjöld.
Voru fimtán álna tjöld annars vegar með þremur stólpum og Þremur undirstöðum;
og hins vegar, báðumegin við forgarðshliðið, sömuleiðis fimtán álna tjöld með þremur stólpum og þremur undirstöðum.
Öll tjöld umhverfis forgarðinn voru úr tvinnaðri baðmull,
undirstöðurnar undir stólpunum af eiri, naglarnir í stólpunum og hringrandirnar á þeim af silfri og stólpahöfuðin silfurlögð; en á öllum Stólpum forgarðsins voru hringrandir af silfri.
Og dúkbreiðan fyrir hliði forgarðsins var glitofin af bláum Purpura, rauðum purpura, skarlati og tvinnaðri baðmull, tuttugu álna löng og fimm álna há eftir dúkbreiddinni, eins og tjöld forgarðsins voru.
Og þar til heyrðu fjórir stólpar og fjórar undirstöður af eiri; en naglarnir í þeim voru af silfri, stólpahöfuðin silfurlögð og hringrandirnar á þeim af silfri.
Og allir hælarnir til tjaldbúðarinnar og forgarðsins hringinn í kring voru af eiri.
Þetta er kostnaðarreikningur tjaldbúðarinnar, sáttmálsbúðarinnar, sem gjörður var að boði Móse með aðstoð Levítanna af Ítamar, syni Arons prests.
En Bezalel UÚríson, Húrssonar, af Júda-ættkvísl gjörði alt það, sem Drottinn hafði boðið Móse;
og með honum var Oholíab Akísamaksson af Dans ættkvísl; hann var hagur á steingröft, listvefnað og glitvefnað af bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og baðmull.
Alt það gull, sem haft var til smíðisins við alla helgidómsgjörðina og fært var að fórnargjöf, var tuttugu og níu talentur og sjö hundruð og þrjátíu siklar eftir helgidóms siklum.
Og silfrið, sem þeir af söfnuðinum, er í manntali voru, lögðu til, var hundrað talentur og Seytján hundruð sjötíu og fimm siklar eftir helgidóms siklum,
hálfsikill á mann, það er hálfur sikill eftir helgidóms sikli, á hvern þann, er talinn var í liðkönnun, tvítugur og þaðan af eldri, og voru það sex Þundruð og þrjú þúsund, fimm hundruð og fimtíu manns.
Hundrað talenturnar af silfri voru hafðar til að steypa úr undirslöður til helgidómsins og undirstöður til fortjaldsins, hundrað undirstöður úr hundrað talentum, ein talenta í hverja undirstöðu.
Af seytján hundruð sjötíu og fimm siklunum gjörði hann naglana í stólpana, silfurlagði stólpahöfuðin og bjó til hringrandir á þá.
Og fórnargjafa-eirinn var sjötíu talentur og tvö þúsund og fjögur hundruð siklar,
Af honum gjörði hann undirstöðurnar til samfundatjalds-dyranna, eiraltarið, eirgrindina, sem því fylgdi, og öll áhöld altarisins,
undirstöðurnar til forgarðsins alt í kring, undirstöðurnar til forgarðshliðsins, alla hæla til tjaldbúðarinnar og alla hæla til forgarðsins alt í kring.