Önnur Mósebók 34Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Önnur Mósebók 34

Og Drottinn sagði við Móse: Högg þér tvær töflur af steini, eins og hinar fyrri voru; mun eg þá rita á töflurnar þau orð, sem stóðu á hinum fyrri töflunum, er þú brauzt í sundur.

Og ver búinn á morgun og stíg árla upp á Sínaí-fjall og kom þar til mín uppi á fjallstindinum.

Enginn maður má fara upp þangað með þér og enginn má heldur láta sjá sig nokkurstaðar á fjallinu; eigi mega heldur sauðir eða naut vera á beit uppi undir fjallinu.

Þá hjó hann tvær töflur af steini, eins og hinar fyrri; og Móse reis árla næsta morgun og gekk upp á Sínaí-fjall, eins og Drottinn hafði boðið honum, og tók í hönd sér báðar steintöflurnar.

Þá steig Drottinn niður í skýi; en hann staðnæmdist þar hjá honum og ákallaði nafn Drottins.

Síðan gekk Drottinn fram hjá honum og kallaði: Drottinn, Drottinn, miskunnsamur og líknsamur Guð, þolinmóður, gæzkuríkur og harla trúfastur,

sem auðsýnir gæzku þúsundum og fyrirgefur misgjörðir, afbrot og syndir, en lætur þær þó eigi með öllu óhegndar, heldur vitjar misgjörða feðranna á börnum og barnabörnum, já í þriðja og fjórða lið.

Móse féll þá skjótlega til jarðar og tilbað.

Og hann sagði: Hafi eg, Drottinn, fundið náð í augum þínum, þá fari Drottinn með oss, því að þetta er harðsvíraður lýður; en fyrirgef oss misgjörðir vorar og syndir, og gjör oss að þinni eign.

Og hann sagði: Sjá, eg gjöri sáttmála: Í augsýn alls þíns fólks vil eg gjöra þau undur, að ekki hafa slík verið gjörð í nokkru landi eða hjá nokkurri þjóð; og skal alt fólkið, sem þú ert hjá, sjá verk Drottins, því að furðulegt er það, sem eg mun við þig gjöra.

Gæt þess, sem eg býð þér í dag: sjá, eg vil stökkva burt undan þér Amórítum, Kanaanítum, Hetítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum.

Varast þú að gjöra nokkurn sáttmála við íbúa lands þess, sem þú kemur til, svo að þeir verði þér ekki að tálsnöru, ef þeir búa á meðal þín;

heldur skuluð þér rífa niður ölturu þeirra, brjóta í sundur merkissteina þeirra og höggva niður asérur þeirra.

Því að þú skalt eigi tilbiðja neinn annan guð, því að Drottinn nefnist vandlætari; vandlátur Guð er hann.

Varast að gjöra nokkurn sáttmála við íbúa landsins; því að þeir munu taka fram hjá með guðum sínum og þeir munu færa fórnir guðum sínum, og þér mun verða boðið og þú munt eta af fórnum þeirra.

Og þú munt taka dætur þeirra handa sonum þínum og dætur þeirra munu taka fram hjá með guðum sínum og tæla syni þína til að taka fram hjá með guðum þeirra.

Þú skalt eigi gjöra þér steypta guði.

Þú skalt halda hátíð hinna ósýrðu brauða; sjö daga skaltu eta ósýrð brauð, eins og eg hefi boðið þér, á ákveðnum tíma í abíb-mánuði, því að í abib-mánuði fórst þú út af Egiptalandi.

Alt það, sem opnar móðurlíf, er mitt; sömuleiðis allur fénaður þinn, sem karlkyns er, frumburðir nauta og sauða.

En frumburði undan ösnum skaltu leysa með lambi; leysir þú ekki, skaltu brjóta þá úr hálsliðum. Alla frumburði sona þinna skaltu leysa; og enginn skal tómhentur koma fyrir auglit mitt.

Sex daga skaltu vinna, en hvílast hinn sjöunda dag; þá skaltu hvílast, hvort heldur er plægingartími eða uppskeru.

Og þú skalt halda vikna-hátíðina, hátíð frumgróða hveitiuppskerunnar, og uppskeruhátíðina við árslokin.

Þrem sinnum á ári skal alt þitt karlkyn birtast frammi fyrir drotni Drottni, Guði Ísraels.

Því að eg mun reka heiðingjana burt frá þér og færa út landamerki þín; og enginn skal áseilast land þitt, þegar þú fer upp til að birtast frammi fyrir Drottni, Guði þínum, þrem sinnum á ári.

Þú skalt ekki fram bera blóð fórnar minnar með sýrðu brauði og páskahátíðarfórnin má ekki liggja til morguns.

Hið fyrsta, frumgróða jarðar þinnar, skaltu færa til húss Drottins, Guðs þíns. Þú skalt ekki sjóða kið í mjólk móður sinnar.

Og Drottinn sagði við Móse: Skrifa þú upp þessi orð, því að samkvæmt þessum orðum hefi eg gjört sáttmála við þig og við Ísrael.

S Og hann var þar hjá Drottni fjörutíu daga og fjörutíu nætur og át ekki brauð og drakk ekki vatn. Og hann skrifaði á töflurnar orð sáttmálans, tíu boðorðin.

En er Móse gekk ofan af Sínaí-fjalli — og hann hafði báðar sáttmálstöflurnar í hendi sér, þegar hann gekk ofan af fjallinu —, þá vissi Móse ekki að geislar stóðu af andlitshörundi hans, af því að hann hafði talað við hann.

Og Aron og allir Ísraelsmenn sáu Móse, og sjá: geislar stóðu af andlitshörundi hans; þorðu þeir þá ekki að koma nærri honum.

En Móse kallaði á þá og sneru þeir þá aftur til hans, Aron og allir leiðtogar safnaðarins, og talaði Móse við þá.

Eftir það gengu allir Ísraelsmenn til hans og bauð hann þeim að halda alt það, sem Drottinn hafði við hann talað á Sínaí-fjalli.

Og er Móse hafði lokið máli sínu við þá, lét hann skýlu fyrir andlit sér.

En er Móse gekk fram fyrir Drottni, til þess að tala við hann, tók hann skýluna frá, þar til er hann gekk út aftur; því næst gekk hann út og flutti Ísraelsmönnum það, sem honum var boðið.

Sáu Ísraelsmenn þá andlit Móse, hversu geislar stóðu af andlitshörundi hans; lét Móse þá skýluna aftur fyrir andlit sér, þar til er hann gekk inn, til þess að tala við Guð.