Gamla testamentiðLögmálið
Og Drottinn sagði við Móse: Far nú héðan með fólkið, sem þú leiddir burt af Egiptalandi, til þess lands, sem eg sór Abraham, Ísak og Jakob, er eg sagði: Niðjum þínum vil eg gefa það.
Og eg vil senda engil á undan þér og reka burt Kanaaníta, Amórita, Hetíta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta,
til þess lands, sem flýtur í mjólk og hunangi; því að ekki vil eg sjálfur fara þangað með þér, af því að þú ert harðsvíraður lýður, að eigi tortími eg þér á leiðinni.
En er fólkið heyrði þennan ófögnuð, urðu þeir hryggir og enginn maður bjó sig í skart.
Þá sagði Drottinn við Móse: Seg Ísraelsmönnum: Þér eruð harðsvíraður lýður; væri eg eitt augnablik með þér á leiðinni, mundi eg tortíma þér; en legg nú af þér skart þitt, svo að eg viti, hvað eg á að gjöra við þig.
Þá lögðu Ísraelsmenn niður skart sitt undir Hóreb-fjalli og báru það eigi upp frá því.
En Móse tók tjaldið og reisti það fyrir utan herbúðirnar, spölkorn frá þeim, og kallaði það samfundatjald; og varð hver sá maður, er leita vildi til Drottins, að fara út til samfundatjaldsins, sem var fyrir utan herbúðirnar.
Og þegar Móse gekk út til tjaldsins, þá stóð upp allur lýðurinn og gekk hver út í sínar tjalddyr og horfði á eftir honum, þar til er hann var kominn inn í tjaldið.
En er Móse var kominn inn í tjaldið, steig skýstólpinn niður og nam staðar við tjalddyrnar, og Drottins talaði við Móse.
Og allur lýðurinn sá skýstólpann standa við tjalddyrnar; stóð þá alt fólkið upp og féll fram, hver fyrir sínum tjalddyrum.
En Drottinn talaði við Móse augliti til auglitis, eins og maður talar við mann; því næst gekk Móse aftur til herbúðanna, en þjónn hans, sveinninn Jósúa Núnsson, veik ekki burt úr tjaldinu.
Og Móse sagði við Drottin: Sjá, þú segir við mig: »Far með fólk þetta«, en þú hefir ekki látið mig vita, hvern þú ætlar að senda með mér; og þó hefir þú sagt: »Eg þekki þig með nafni og þú hefir einnig fundið náð í augum mínum«.
Hafi eg nú fundið náð í augum þínum, þá bið eg: gjör mér kunna þína vegu, að eg megi þekkja þig, svo að eg finni náð í augum þínum, og gæt þess, að þjóð þessi er þinn lýður.
Og hann sagði: Á auglit mitt að fara með og búa þér hvíld?
En hann svaraði honum: Fari auglit þitt eigi með, þá lát oss eigi fara héðan;
af hverju mega menn ella vita, að eg og lýður þinn hafi fundið náð í augum þínum? hvort eigi af því, að þú farir með oss og eg og þinn lýður verðum ágættir framar öllum þjóðum, sem á jörðu búa?
Þá sagði Drottinn við Móse: Einnig þetta, er þú nú mæltir, vil eg gjöra, því að þú hefir fundið náð í augum mínum og eg þekki þig með nafni.
En hann sagði: Lát mig þá sjá dýrð þína!
Hann svaraði: Eg vil láta allan minn ljóma líða fram hjá þér og eg vil kalla nafnið Drottins frammi fyrir þér; og eg vil líkna þeim, sem eg vil líkna, og miskunna þeim, sem eg vil miskunna.
Og enn sagði hann: Þú getur eigi séð auglit mitt, því að enginn maður fær séð mig og lífi haldið.
Og Drottinn sagði: Sjá, hér er staður hjá mér, og skalt þú standa uppi á berginu.
En þegar dýrð mín fer fram hjá, vil eg láta þig standa í bergskorunni, og mun eg byrgja þig með hendi minni, unz eg er kominn fram hjá.
En þegar eg tek hönd mína frá, munt þú sjá á bak mér; en auglit mitt fær enginn maður séð.