Nehemíabók 3Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Nehemíabók 3

Þá tóku þeir sig til, Eljasíb æðsti prestur og bræður hans, prestarnir, og reistu Sauðahliðið — vígðu þeir það og settu hurðirnar í það —, og alt að Hammea-turni — hann vígðu þeir —, alt að HananeeLturni.

Næstir honum hygðu Jeríkómenn, og næstur þeim bygði Sakkúr Imríson.

Fiskhliðið hygðu Senaa-menn; þeir gjörðu þar dyra-umbúnað og settu hurðirnar í það, lokurnar og slagbrandana.

Næstur þeim blóð upp Meremót Úríason, Hakkózsonar. Næstur honum blóð upp Mesúllam Berekíason, Mesesabeelssonar. Næstur honum blóð upp Zadók Baanason.

Næstir honum hlóðu upp Tekóamenn; en göfugmenni þeirra beygðu ekki háls sinn undir þjónustu herra síns.

Við gamla hliðið gjörðu þeir Jójada Paseason og Mesúllam Besódíason; þeir gjörðu þar dyra-umbúnað og settu hurðirnar í það, lokurnar og slagbrandana.

næstir þeim hlóðu upp Melatja Gíbeoniti og Jadón Merónótiti, og meðal þeirra menn frá Gíbeon og Mizpa, sem lutu hástól landstjórans í héraðinu hinumegin Fljóts.

Næstur þeim blóð upp Ussíel Harhajason og með honum gullsmiðirnir. Næstur honum ldóð upp Hananja, einn af smyrslasölunum; og þeir steinlögðu Jerúsalem alt að breiða múrnum.

Næstur honum blóð upp Refaja Húrsson, höfðingi yfir hálfu héraðinu kring um Jerúsalem.

Næstur Honum blóð uppJedaja Harúmafsson, og það gegnt húsi sínu. Næstur honum blóð upp Haltús Hasabnejason.

Annan part hlóðu upp þeir Malkía Harímsson og Hasúb Pahat-Móabsson, svo og baksturofnsturninn.

Næstur þeim blóð upp Sallúm Hallóhesson, höfðingi yfir hinum helming héraðsins kring um Jerúsalem — hann og dætur hans.

Við Dalshliðið gjörði Hanún og Sanóa-búar, -— þeir hygðu það og settu hurðirnar í það, lokurnar og slagbrandana — og þúsund álnir af múrnum, alt að Mykjuhliðinu.

Við Mykjuhliðið gjörði Malkía Rekabsson, höfðingi yfir BetKerem-héraði; hann bygði það og setti hurðirnar í það, lokurnar og slagbrandana.

Við Lindarhliðið gjörði Saltún Kol-Hóseson, höfðingi yfir Mizpa-héraði — hann bygði það, gjörði þak á það, setti hurðirnar í það, lokurnar og slagbrandana —, enn fremur múrinn hjá vatnsveitutjörninni að Kongsgarðinum og alt að tröppunum, er liggja niður frá Davíðsborg.

Næstur á eftir honum hlóð upp Nehemía Asbúksson, höfðingi yfir hálfu Bet-Zúr-héraði, þar til komið var gegnt gröfum Davíðs og að tilbúnu tjörninni og kappahúsinu.

Næstir á eftir honum hlóðu upp Levítarnir — og var Rehúm Baníson fyrir þeim. Næstur þeim blóð upp Hasabja, höfðingi yfir hálfu Kegilu-héraði, fyrir sitt hérað.

Næstir á eftir honum hlóðu upp bræður þeirra, og fyrir þeim Bavvaí Henadadsson, höfðingi yfir hinum helming Kegílu-héraðs.

Næstur þeim blóð upp Eser Jesúason, höfðingi yfir Mizpa, annan part, gegnt þar sem gengið er upp í vopnabúrið á horninu.

Næstur á eftir honum, upp fjallið, blóð upp Barúk Sabbaíson, annan part, frá horninu að dyrunum á húsi Eljasíbs æðsta prests.

Næstur á eftir honum blóð upp Meremót Uríason, Hakkózsonar, annan part, frá dyrunum á húsi Eljasíbs að endanum á húsi Eljasíbs.

Næstir á eftir honum hlóðu upp prestarnir, menn þar úr grendinni.

Næstir á eftir þeim hlóðu upp þeir Benjamín og Hassúb, gegnt húsi sínu. Næstur á eftir þeim blóð upp Asarja Maasejason, Ananjasonar, hjá húsi sínu.

Næstur á eftir honum blóð upp Binnúi Henadadsson, annan part, frá húsi Asarja að horninu, þar að sem múrinn beygir við.

Þalat Úsaíson gegnt horninu og efri turninum, sem gengur út úr höll konungs og heyrir til varðgarðsins. Næstur á eftir honum Pedaja Parósson.

En musterisþjónarnir bjuggu í Ofel, austur á móts við Vatnshliðið og turninn, er þar gengur fram.

Næstir á eftir honum hlóðu upp Tekóamenn, annan part, gegnt stóra turninum, er þar gekk fram, alt að Ófetmúrnum.

Fyrir ofan Hrossahliðið hlóðu prestarnir upp hver gegnt húsi sínu.

Næstur á eftir þeim blóð upp Zadók Immersson gegnt húsi sínu. Næstur á eftir honum blóð upp Semaja Sekanjason, vörður Austurhliðsins.

Næstir á eftir honum hlóðu upp þeir Hananja Selemjason og Hanún, setti sonur Zalafs, annan part. Næstur á eftir þeim blóð upp Mesúllam Berekíason, gegnt klefa sínum.

Næstur á eftir honum blóð upp Malkía, einn af gullsmiðunum, alt að húsi musterisþjónanna, og kaupmennirnir gegnt Mífkað-hliðinu og alt að hornsvölunum.

Og milli hornsvalanna og Sauðahliðsins hlóðu gullsmiðirnir og kaupmennirnir. Tálmað múrhleðslunni.