Nehemíabók 2Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Nehemíabók 2

Og í nísan-mánuði á tuttugasta ríkisári Artahsasta konungs, þá er vín stóð fyrir framan hann, tók eg vínið og rétti að konungi, án þess að láta á því bera við hann, hve illa lá á mér.

En konungur sagði við mig: Hví ert þú svo dapur í bragði, þar sem þú ert þó ekki sjúkur? það hlýtur að liggja illa á þér. Þá varð eg ákaflega hræddur.

Og eg sagði við konung: Konungurinn lifi eilíflega! Hví skyldi eg ekki vera dapur í bragði, þar sem borgin, er geymir grafir forfeðra minna, er í eyði lögð og hlið hennar í eldi brend?

Þá sagði konungur við mig: Hvers beiðist þú þá? Þá gjörði eg bæn mína til Guðs himnanna;

síðan mælti eg til konungs: Ef konungi þóknast svo og ef þú telur þjón þinn til þess færan —: að þú sendir mig til Júda, til borgar þeirrar, er geymir grafir forfeðra minna, til þess að eg endurreisi hana.

Og konungur mælti til mín — en drotning sat við hlið honum: Hversu lengi mun ferð þín standa yfir, og hve nær kemur þú aftur? Og konungi þóknaðist að senda mig, og eg tiltók ákveðinn tíma við hann.

Og eg sagði við konung: Ef konunginum þóknast svo, þá lát fá mér bréf tl landstjóranna í héraðinu hinumegin Fljóts, til þess að þeir leyfi mér að fara um lönd sín, þar til er eg kem til Júda,

og bréf til Asafs, varðar skemtiskógar konungsins, til þess að hann láti mig fá við, til þess að gjöra af bjálka í hlið kastalans, er heyrir til musterisins, og til borgarmúranna og til hússins, er eg mun fara í. Og konungur veitti mér það, með því að hönd Guðs míns hvíldi náðarsamlega yfir mér.

Og er eg kom til landstjóranna í héraðinu hinumegin Fljóts, þá fékk eg þeim bréf konungs; konungur sendi og með mér höfuðsmenn Og riddara.

En er Sanballat Hóroníti og Tobía þjónn, Ammónítinn, spurðu það, gramdist þeim það mikillega, að kominn skyldi vera maður til að annast hagsmuni Ísraelsmanna. Nehemía rannsakar múrana.

Og eg kom til Jerúsalem, og er eg hafði verið þar þrjá daga,

fór eg á fætur um nótt og fáeinir menn með mér, án þess að hafa Sagt nokkurum manni frá því, er Guð minn blés mér í brjóst að gjöra fyrir Jerúsalem, og án þess að nokkur skepna væri með mér, nema skepnan, sem eg reið.

Og eg fór út um Dalshliðið um nóttina og í Áttina til Drekalindar og Mykjuhliðs, og eg skoðaði múra Jerúsalem, hversu þeir voru rifnir niður og hlið hennar í eldi brend.

Síðan hélt æg áfram til Lindarhliðs og Konungstjarnar; þá var skepnunni ekki lengur fært að komast áfram undir mér.

Gekk eg þá upp í dalinn um nóttina og skoðaði múrinn. Síðan kom ey aftur inn um Dalshliðið og sneri heim.

En yfirmennirnir vissu ekki, hvert eg hafði farið né hvað eg ætlaði að gjöra, með því að eg hafði enn ekki neitt sagt Júðum né prestunum né tignarmönnunum né yfirmönnunum né öðrum þeim, er að verkinu unnu.

Og eg sagði nú við þá: Þér sjáið, hversu illa vér erum staddir, þar sem Jerúsalem er í eyði lögð og hlið hennar í eldi brend. Komið, vér skulum endurreisa múra Jerúsalem, svo að vér verðum ekki lengur hafðir að spotti.

Og eg sagði þeim, hversu náðarsamlega hönd Guðs míns hefði hvítt yfir mér, svo og orð konungs, þau er hann talaði til mín. Þá sögðu þeir: Vér viljum fara til og byggja! Og þeir styrktu hendur sínar til hins góða verksins.

En er Sanballat Hóroniti og Tobía þjónn, Ammónítinn, og Gesem Arabi spurðu þetta, gjörðu þeir gys að oss, sýndu oss fyrirlitningu og sögðu: Hvað er þetta, sem þér hafið fyrir stafni? Ætíð þér að gjöra uppreisn móti konunginum?

En eg svaraði þeim og sagði við þá: Guð himnanna, hann mun láta oss takast þetta; en vér þjónar hans munum fara til og byggja. En þér eigið enga hlutdeild né rétt né minning Í Jerúsalem. Taldir þeir, er unnu að viðreisn múranna.