Gamla testamentiðSpámennirnir
Hald hátíðir þínar, Júda, gjald heit þín, því að eyðandinn skal ekki framar um hjá þér fara — hann er með öllu afmáður.
Ofriðarinaðurinn fer í móti þér: Gæt vígisins! Horf njósnaraugum út á veginn, styrk lendarnar, safna öllum styrkleika þínum.
Því að Drottinn reisir aftur við tign Jakobs, eins og tign Ísraels, því að ræningjar hafa rænt þá og skemt gróðurkvistu þeirra.
Skildir kappa hans eru rauðlitaðir, hermennirnir klæddir skarlatsklæðum; vagnarnir glóa af stáli þann dag, er hann útbýr þá, og lensunum verður sveiflað.
Vagnarnir Bersa á strætunum, þeytast um torgin; þeir eru til að sjá sem blys, þeir þjóta áfram sem eldingar.
Hann heitir þá á tignarmenn sína: þeir hrasa á göngu sinni; þeir flýta sér að múr hennar — en þegar er vígþak reist.
Hliðunum við fljótið er lokið upp og konungshöllin kemst í uppnám.
Og drotningin verður flett klæðum og flutt burt, og þernur hennar munu andvarpa, líkast því sem dúfur kurri, og berja sér á brjóst.
Níníve hefir verið sem vatnstjörn frá upphafi vega sinna. En þeir flýja. »Standið við, standið við!« — en enginn lítur við.
Rænið silfri, rænið gulli! því að hér er óþrjótandi forði — ógrynni af alls konar dýrum munum.
Auðn, gjörauðn og aleyðing — huglaus hjörtu, ríðandi kné og skjálfti í öllum mjöðmum, og allra andlit blikna.
Hvar er nú bæli ljónanna, átthagar ungljónanna, þar sem ljónið gekk og ljónynjan og ljónshvolpurinn, án þess að nokkur stygði þau?
Ljónið reif sundur, þar til er ungar þess höfðu fengið nægju sína, og drap niður handa ljónynjum sínum; hann fylti hella sína bráð og bæli sín ránfeng.
Sjá, eg rís í gegn þér — segir Drottinn hersveitanna — og læt vagna þína bálast upp í reyk, og sverðið skal eta ungljón þín. Og eg eyði herfangi þínu af jörðunni og raust sendiboða þinna skal ekki framar heyrast.