Gamla testamentiðSpámennirnir
Spádómur um Nínive. Bókin um vitrun Nahúms Elkósita.
Drottinn er vandlætissamur Guð og hefnari; Drottinn er hefnari og fullur gremi. Drottinn hefnir sín á mótstöðumönnum sínum og er langrækinn við óvini sína.
Drottinn er seinn til reiði og mikill að krafti, en óhegnt lætur hann ekki. Drottinn brunar áfram í fellibyljum og stormviðri og skýin eru rykið undir fótum hans.
Hann hastar á sjóinn og þurkar hann upp og hann lætur öll fljót þorna. Þá fölnar Basan og Karmel, þá fölnar jurtagróðurinn á Líbanon.
Fjöllin skjálfa fyrir honum og hálsarnir renna sundur; jörðin gengur skykkjum fyrir honum, heimskringlan og allir, sem á henni búa.
Hver fær staðist gremi hans og hver fær afborið hans brennandi reiði? Heift hans úthellist eins og eldur og björgin bresta sundur fyrir honum.
Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, og hann þekkir þá, sem treysta honum.
SEn með yfirgeisandi vatnsflóði mun hann gjörsamlega afmá þá, er gegn honum rísa, og myrkur mun ofsækja óvini hans.
Hvað bruggið þér gegn Drottni? Hann eyðir svo, að af tekur — þrengingin mun ekki koma tvisvar.
Þótt þeir væru samflæktir sem þyrnar og votir sem vín þeirra, þá munu þeir upp brendir verða sem skraufþurrir hálmleggir.
Frá þér út gekk sá, er hafði ilt í huga gegn Drottni, sá er hafði skaðsemdar-áform með höndum.
Svo segir Drottinn: Þótt þeir komi allir með tölu og afarfjölmennir, þá skulu þeir alt að einu afmáðir verða og farast. Hafi eg auðmýkt þig, þá mun eg ekki auðmýkja þig framar.
Og nú vil eg brjóta ok hans af þér og slíta hönd þín.
En um þig mun Drottinn skipa svo fyrir: Ekkert afkvæmi skal framar koma út af nafni þínu. Eg vil eyða skurðmyndunum og steyptu líkneskjunum úr hofi guðs þíns, eg vil búa þér gröf, því að þú ert léttvægur fundinn.