Gamla testamentiðSpámennirnir
Spádómur. Orð Drottins til Ísraels fyrir munn Malakí.
Eg elska yður, segir Drottinn. Og ef þér spyrjið: »Með hverju hefir þú sýnt á oss kærleika þinn? þá svarar Drottinn: Er ekki Esaú bróðir Jakobs? en eg elskaði Jakob,
Esaú hataði eg, svo að eg gjörði fjallhygðir hans að auðn og fékk eyðimerkur-sjakölunum arfleifð hans til eignar.
Ef Edómítar segja: Vér höfum að vísu orðið fyrir eyðingu, en vér munum byggja upp aftur rofin! þá segir Drottinn hersveitanna svo: Byggi þeir, en eg mun rífa niður, svo að menn munu kalla þá »Glæpaland« og »lýðinn, sem Drottinn er eilíflega reiður«.
Þér munuð sjá það með eigin augum og þér munuð segja: Mikill er Drottinn langt út yfir landamæri Ísraels.
Sonurinn skal heiðra föður sinn og þrællinn húsbónda sinn. En sé eg nú faðir, hvar er þá heiðurinn, sem mér ber, og sé eg húsbóndi, hvar er þá lotningin, sem mér ber? segir Drottinn hersveitanna við yður, Þér prestar, sem óvirðið nafn mitt. Þér spyrjið: Með hverju óvirðum vér nafn þitt?
Þér berið fram óhreina fæðu á altari mitt. Og enn getið þér spurt: Með hverju ósæmum vér þig? þar sem þér þó segið: Borð Drottins er lítils metandi!
Og þegar þér færið fram blinda skepnu til fórnar, þá kallið þér það ekki saka, og þegar þér færið fram halta eða sjúka skepnu, þá kallið þér það ekki saka. Fær landstjóra þínum það, — vit hvort honum geðjast þá vel að þér eða hvort hann tekur þér vel! segir Drottinn hersveitanna.
Og nú, blíðkið Guð, til þess að hann sýni oss líknsemi. Yður er um þetta að kenna; getur hann þá tekið nokkurum yðar vel? segir Drottinn hersveitanna.
Sæmra væri að einhver yðar lokaði dyrunum, svo að þér tendruðuð ekki eld til ónýtis á altari mínu. Eg hefi enga velþóknun á yður, segir Drottinn hersveitanna, og eg girnist enga fórnargjöf af yðar hendi.
Því að frá upprás sólar alttif niðurgöngu hennar er nafn mitt mikið meðal þjóðanna og alstaðar er nafni mínu fórnað reykelsi og hreinni matfórn; því að nafn mitt er mikið meðal þjóðanna, segir Drottinn hersveitanna.
En þér vanhelgið það, með því að þér segið: Borð Drottins er óhreint, og það, sem af því fellur oss til fæðslu, er einskisvert.
Og þér segið: Sjá, hvílík fyrirhöfn! og fyrirlitið það, segir Drottinn hersveitanna, og þér færið fram það sem rænt er og það sem halt er og það sem sjúkt er og færið það í fórn; ætti eg að girnast slíkt af yðar hendi? segir Drottinn.
Bölvaðir veri þeir svikarar, er eiga hvatan fénað í hjörð sinni og gjöra heit, en fórna síðan drotni gölluðu berfé! Því að eg er mikill konungur, segir Drottinn hersveitanna, og menn óttast nafn mitt meðal heiðingjanna.