Gamla testamentiðSpámennirnir
Ó En síðar meir mun eg úthella anda mínum yfir alt hold; synir yðar og dætur yðar munu spá, gamalmenni yðar mun drauma dreyma, ungmenni yðar munu sjá sjónir.
Já, einnig yfir þræla og ambáttir mun eg á þeim dögum úthella anda mínum.
Og eg mun láta tákn verða á himni og á jörðu: blóð, eld og reykjarstróka.
Sólin mun snúast í myrkur og tunglið í blóð, áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur.
Og hver, sem ákallar nafn Drottins, mun frelsast. Því að á Zíon-fjalli og í Jerúsalem mun frelsun verða, eins og Drottinn hefir sagt, og meðal flóttamannanna fyrir þá, sem Drottinn kallar.
Því að sjá, á þeim dögum og í þann tíð, er eg sný við högum Júda og Jerúsalem,
vil eg saman safna öllum þjóðum og færa þær ofan í Jósafatsdal og ganga þar í dóm við þær, vegna lýðs míns og arfleifðar minnar Ísraels, af því að þeir hafa dreift henni meðal heiðingjanna og skift sundur landi mínu;
og þeir köstuðu hlutum um lýð minn og gáfu svein fyrir skækju og seldu mey fyrir vín og drukku.
Og hvað viljið þér mér, Týrus og Sídon og öll héruð Filisteu! Ætlið þér að gjalda mér það, sem yður hefir gjört verið, eða ætlið þér að Björa mér eitthvað? Afarskyndilega mun eg láta gjörðir yðar koma sjálfum yður í koll.
Þér hafið rænt silfri mínu og gulli og flutt beztu Sersemar mínar í musteri yðar.
Júdamenn og Jerúsalembúa hafið þér selt Íónum, til þess að flytja þá langt burt frá átthögum þeirra.
Sjá, eg mun kalla þá frá þeim stað, þangað sem þér hafið selt þá, Og eg mun láta gjörðir yðar koma sjálfum yður í koll.
Og eg mun selja sonu yðar og dætur Júdamönnum, og þeir munu selja þá Saba-mönnum, fjarlægri þjóð, því að Drottinn hefir sagt það.
Boðið þetta meðal heiðingjanna: Búið yður í heilagt stríð! Kveðjið upp kappana! Allir herfærir menn komi fram og fari í leiðangur!
Smíðið sverð úr plógjárnum yðar og lensur úr sniðlum yðar! Heilsuleysinginn hrópi: Eg er hetja!
Flýtið yður og komið, allar þjóðir, sem umhverfis eruð, og safnist saman. Drottinn, lát kappa þína stíga niður þangað!
Hreyfing skal koma á þjóðirnar og þær skulu halda upp í Jósafatsdal; því að þar mun eg sitja, til þess að dæma allar þjóðirnar, sem umhverfis eru.
Bregðið sigðinni, því að kornið er fullþroskað; komið og troðið, því að vínlagarþróin er full, það flóir út af lagarkerunum, því að fiska þeirra er mikil.
Flokkarnir þyrpast saman í dóms-dalnum; því að dagur Drottins er nálægur í dómsdalnum.
Sól og tungl eru myrk orðin og stjörnurnar hafa mist birtu sína.
En Drottinn öskrar frá Zíon og lætur raust sína gjalla frá Jerúsalem, svo að himinn og jörð nötra; en Drottinn er athvarf sínum lýð og vígi Ísraelsmönnum.
Og þér skuluð viðurkenna að eg er Drottinn, Guð yðar, sem bý á Zíon, mínu heilaga fjalli. Og Jerúsalem skal vera heilög og útlendingar skulu ekki framar inn í hana koma.
Á þeim degi munu fjöllin löðra í vínberjalegi og hálsarnir fljóta í mjólk og allir lækir í Júda renna vatnsfullir. Og lind mun fram spretta undan húsi Drottins og vökva dal akasíutrjánna.
Egiptaland mun verða að öræfum og Edóm að óbygðri eyðimörk, sökum ofríkis við Júdamenn, af því að þeir útheltu saklausu blóði í landi þeirra.
En Júda mun eilíílega bygt verða og Jerúsalem frá kyni til kyns.
Og eg mun láta hefnt verða blóðs þeirra, sem eg hefi ekki enn hefnt, og Drottinn mun búa kyrr á Zion. Amos.