Gamla testamentiðSpámennirnir
Þeytið lúðurinn í Zíon og æpið óp á mínu heilaga fjalli, svo að allir íbúar landsins nötri. Því að dagur Drottins kemur, já, hann er í nánd,
dagur myrkurs og dimmu, dagur skýþyknis og skýsorta. Eins og morgunbjarmi breiðist yfir fjöllin mikil og voldug þjóð; hennar líki hefir ekki verið frá eilifð og hennar líki mun ekki koma eftir hana alt fram á ár ókominna alda.
fyrir henni fer eyðandi eldur og eftir henni logi brennandi. Þótt landið fram undan henni hafi verið eins og Edensgarður, er það á bak henni sem eyðiðræfi; enginn hlutur komst undan henni.
Ásýndum eru þeir sem hestar að sjá og þeir eru fráir sem riddarar.
Eins og glamrandi vagnar stökkva þeir yfir fjallahnjúkana, eins og snarkar í eldsloga, sem eyðir hálmleggjum, eins og voldug þjóð, sem búin er til bardaga.
Fyrir henni skjálfa þjóðirnar, öll andlit blikna.
Þeir hlaupa sem hetjur, stíga upp á borgarvegginn sem hermenn; sérhver þeirra gengur sína leið og enginn riðlast á annars braut.
Enginn þeirra þrengir öðrum, hver gengur sína braut; jafnvel mót skotspjótum þeytast þeir áfram, án þess að stöðva ferð sína.
Þeir ráðast inn í borgina, hlaupa á borgarvegginn, stíga upp í húsin, fara inn um gluggana sem þjófar.
Fyrir henni nötrar jörðin, himnarnir skjálfa; sól og tungl myrkvast og stjörnurnar missa birtu sína.
Og Drottinn lætur raust sína þruma fyrir öndverðu liði sínu. Því að herlið hans er afarmikið, því að voldugur er sá, sem framkvæmir hans boð. Já, mikill er dagur Drottins og mjög ógurlegur; hver getur afborið hann?
En snúið yður og nú til mín, segir Drottinn, af öllu hjarta, með föstum, gráti og kveini.
Sundurrífið hjörtu yðar, en ekki klæði yðar, og hverfið aftur til Drottins, Guðs yðar, því að hann er líknsamur og miskunnsamur, þolinmóður og gæzkuríkur og iðrast hins illa.
Hver veit nema hann iðrist aftur og láti blessun eftir sig: matfórn og dreypifórn handa Drottni, Guði yðar!
Þeytið lúðurinn í Zíon, stofnið til helgrar föstu, boðið hátíðarstefnu.
Kveðjið saman lýðinn, helgið söfnuðinn, stefnið saman gamalínennum, safnið saman börnum og brjóstmylkingum. Brúðguminn gangi út úr herbergi sínu og brúðurin út úr brúðarsal sínum.
Milli forsals og altaris skulu prestarnir, þjónar Drottni, gráta og segja: Þyrm þjóð þinni, Drottinn, og lát eigi arfleifð þína verða að spotti, svo að heiðingjarnir drotni yfir þeim. Hví skulu menn segja meðal þjóðanna: Hvar er Guð þeirra?
Þá varð Drottni vandlætissamur vegna lands síns og hann þyrmdi lýð sínum.
Drottinn tók til máls og sagði við lýð sinn: Sjá, eg sendi yður korn, vínberjalög og olíu, svo að yður skal nægja til saðnings; og eg vil eigi láta yður verða framar að spotti meðal heiðingjanna.
Og óvininn, sem frá norðri kemur, mun eg reka langt burt frá yður og stökkva honum út á auðnir og öræfi; skal fararbroddur hans lenda í austurhafinu og halaflokkurinn í vesturhafinu; þar skal fýla og illur daunn upp af honum stíga; því að hann hefir unnið stórvirki.
Óttast eigi, land; fagna og gleðst; því að Drottinn hefir unnið stórvirki.
Óttist eigi, þér dýr merkurinnar; því að grashagar eyðimerkurinnar grænka, því að trén bera ávöxt, fíkjutrén og vintrén gefa sinn gróða.
Og þér Zionbúar, fagnið og gleðjist í Drottni, Guði yðar, því að hann gefur yður regn í réttum mæli og lætur skúrirnar ofan til yðar koma, haustregn og vorregn, eins og áður.
Láfarnir verða fullir af korni, og vínberjalögurinn og olían ílóa út af þrónum.
Eg bæti yður upp árin, er átvargurinn, ílysjarinn, jarðvargurinn og nagarinn átu, — minn mikli ber, er eg sendi móti yður.
Þér skuluð eta og mettir verða og vegsama nafn Drottins, Guðs yðar, sem dásamlega hefir við yður gjört, og þjóð mín skal aldrei að eilífu til skammar verða.
Og þér skuluð viðurkenna, að eg er meðal Ísraels og að eg er Drottinn, yðar Guð, og enginn annar. Og þjóð mín skal aldrei að eilífu til skammar verða.