Jobsbók 6Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 6

Þá svaraði Job og sagði:

að gremja mín væri vegin og böl mitt lagt í hina skálina.

Því að nú er það þyngra en sandur hafsins, fyrir því voru orð mín gálausleg.

Því að örvar hins Almátka sitja fastar í mér, og andi minn drekkur í sig eitur þeirra; ógnir Guðs steðja að mér.

Rymur skógarasninn yfir grængresinu, eða öskrar nautið yfir fóðurblending sínum?

Verður hið bragðlausa etið saltlaust, eða er gott bragð að hvítunni í egginu?.

Mér býður við að snerta það, mig velgir við hinum óhreina mat mínum.

Ó að ósk mín uppfyllist og Guð léti von mína rætast!

Eg vildi að Guði þóknaðist að merja mig sundur, rétta út höndina og skera lífsþráð minn sundur!

Þá væri það þó enn huggun mín — og eg skyldi hoppa af gleði í vægðarlausri kvölinni — að eg hefi aldrei afneitað orðum hins Heilaga.

Hver er kraftur minn, að eg skyldi þreyja, og hver verða endalok mín, að eg skyldi vera þolinmóður?

Er þá kraftur minn kletta-kraftur, eða er líkami minn af eiri?

Er eg ekki með öllu hjálparvana og öll frelsun frá mér hrakin?

Hreldur maður á heimting á meðaumkun hjá vini sínum, - enda þótt hann hætti að óttast hinn Almátka.

Bræður mínir brugðust eins og lækur, eins og farvegur lækja, sem flóa yfir,

sem gruggugir eru af ís og snjórinn hverfur ofan í.

Jafnskjótt og þeir bakast af sólunni, þorna þeir upp, A þegar hitnar, hverfa þeir burt af stað sínum.

Kaupmannalestirnar beygja af leið sinni, halda upp í eyðimörkina og farast.

Kaupmannalestir frá Tema skygndust eftir þeim, ferðamannahópar frá Saba reiddu sig á þá:

þeir urðu sér til skammar fyrir vonina, þeir komu þangað og urðu sneyptir.

Þannig eruð þér nú orðnir fyrir mér: þér sáuð skelfing og skelfdust.

Hefi eg sagt: »Færið mér eitthvað og borgið af eigum yðar fyrir mig;

frelsið mig úr höndum óvinarins og leysið mig undan valdi kúgarans«?

Fræðið mig, og eg skal þegja, og sýnið mér, í hverju mér hefir á orðið.

Hversu áhrifamikil eru einlægninnar orð, en hvað sanna átölur yðar?

Hafið þér í hyggju að ásaka orð? Ummæli örvilnaðs manns hverfa út í vindinn.

Þér munduð jafnvel hluta um föðurleysingjann og selja vin yðar.

Og nú — ó að yður mælti þóknast að lifa á mig, eg mun vissulega ekki Ljúga upp í opið geðið á yður.

Snúið við, fremjið eigi ranglæti, já, snúið við, enn þá hefi eg rétt fyrir mér.

Er ranglæti á minni tungu, eða ætli gómur minn greini ekki hvað ilt er?