Jesajabók 25Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 25

Drottinn, þú ert minn Guð! eg vil vegsama þig, lofa nafn þitt; því að þú hefir framkvæmt furðuverk, löngu ráðin ráð, trúfesti og sannleika.

Því að þú hefir gjört bæi að grjóthrúgu, víggirtar borgir að hruninni rúst; haltir óvinanna eru eigi framar bæir, þær skulu aldrei verða reistar aftur.

Þess vegna munu harðsnúnir þjóðflokkar heiðra þig, og borgir ofríkisfullra þjóða hræðast þig.

Því að þú varst vörn lítilmagnans, vörn hins vesala í nauðum hans, skjól í skúrunum, hlíf í hitanum; þótt andgustur ofríkismannanna sé eins og kuldaskúrir,

glaumkæti óvinanna eins og sólarbreiskja í ofþurki, þá sefar þú sólarbreiskjuna með skugganum af skýinu, og sigursöngur ofríkismannanna hljóðnar.

Og Drottinn hersveitanna mun á þessu fjalli búa öllum þjóðum veizlu með krásum, veizlu með dreggjavíni, mergjuðum krásum og skírðu dreggjavíni.

Og hann mun afmá á þessu fjalli skýlu þá, sem hylur alla lýði, og þann hjúp, sem breiddur er yfir allar þjóðir.

SHann mun afmá dauðann að eilífu, og Drottinn Guð mun þerra tárin af hverri ásjónu, og svívirðu síns lýðs mun hann burt nema af allri jörðinni, því að Drottinn hefir talað það.

Á þeim degi mun sagt verða: Sjá, þessi er vor Guð; vér vonuðum á hann, að hann mundi frelsa oss; þessi er Drottinn; vér vonuðum á hann; fögnum og gleðjumst yfir hjálpræði hans!

Því að hönd Drottins mun hvíla yfir þessu fjalli, en Móab verða fótum troðinn þar sem hann er, eins og hálmur er troðinn niður í haugpolli.

Og hann mun breiða út hendur sínar niðri í pollinum, eins og sundmaður gjörir, til þess að taka sundtökin; en hann mun lægja dramb hans þrátt fyrir brögð handa hans.

Vígi þinna háu múra mun hann að velli leggja, steypa því niður og varpa til jarðar, ofan í duftið.