Jesajabók 23Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 23

Kveinið, þér Tarsis-knerrir, því að hún er í eyði lögð! ekkert hús þar framar, ekkert til að fara inn í! Frá Kípur berst þeim sú fregn.

Verið hljóðir, þér íbúar ey-borgarinnar, sem full var af kaupmönnum frá Zídon, er yfir hafið fara,

Og dró að sér Síkor-sáð og Nílarkorn yfir hin miklu höf og var kauptún þjóðanna!

Fyrirverð Þig, Zídon, því að særinn, sæborgin, segir: Eigi hefi eg verið jóðsjúk Og eigi fætt, og eigi hefi eg fóstrað yngismenn né uppalið meyjar.

B Þegar fregnin kemur til Egiptalands, munu þeir skelfast af fregninni inn Týrus.

Farið yfir til Tarsis og kveinið, þér íbúar ey-borgarinnar,

Er þetta glaummikla borgin yðar, sem rekur uppruna sinn fram til fornaldar daga og stikað hefir langar leiðir, til þess að taka sér bólfestu?

Hver hefir ályktað svo um Týrus — um hana, sem ber höfuðdjásnið, þar sem kaupmennirnir voru höfðingjar og verzlunarmennirnir tignustu menn á jörðu?

Drottinn hersveitanna hefir ályktað þetta, til þess að ósæma alt hið dýrlega skraut og lægja alla hina tignustu menn á jörðu.

Flæð yfir land þitt eins og Nílfljótið, Tarsis-dóttir! engir flóðgarðar eru framar til.

Hann rétti hönd sína út yfir hafið, skelfdi konungaríki; Drottinn bauð að gjöreyða varnarvirki Kanaans.

Hann sagði: Þú skalt aldrei framar leika af kæti, þú spjallaða mey, Zídon-dóttir. Statt upp og far yfir til Kitla; þú skalt ekki heldur finna þar hvíld.

Sjá land Kaldea, það er þjóðin, sem orðin er að engu; Assúr hefir fengið það urðarköttum; þeir reistu vígturna sína, rifu niður hallirnar, gjörðu landið að rústum.

Kveinið, þér Tarsis-knerrir, því að varnarvirki yðar er lagt í eyði.

Á þeim dögum skal Týrus gleymast í sjötíu ár, eins og um daga eins konungs. En að liðnum sjötíu árum mun fara fyrir Týrus eins og segir Í skækjukvæðinu:

Tak gígjuna, far um alla borgina, þú gleymda skækja! Leik fagurlega, syng hátt, svo að eftir þér verði munað!

Að liðnum þeim sjötíu árum mun Drottinn vitja Týrusar; mun hún þá aftur fá skækjulaun sín og hórast með öllum konungaríkjum veraldarinnar, þeim sem á jörðinni eru;

en aflafé hennar og skækjulaun skulu helguð verða Drottni; það skal ekki verða lagt í sjóð eða geymt, því að þeir, sem búa frammi fyrir augliti Drottins, skulu fá aflafé hennar sér til fæðslu og saðningar og sæmilegs klæðnaðar.