Jesajabók 22Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 22

Hvað kemur að þér, að alt fólk þitt skuli vera stigið upp á húsþökin,

þú ofkætisfulli, hávaðasami bær, þú glaummikla borg! Menn þínir, sem fallnir eru, hafa ekki fallið fyrir sverði né beðið bana í orustum.

Höfðingjar þínir lögðu allir saman á flótta, voru handteknir án þess skotið væri af boga; allir menn þínir, er náðust, voru handteknir hver með öðrum, þótt þeir hefðu flúið langt burt.

Þess vegna segi eg: Látið mig einan; eg vil gráta beisklega; gjörið mér eigi ónæði með því að hugga mig yfir eyðing dóttur þjóðar minnar.

Því að dagur skelfingar, undirokunar og úrræðaleysis var kominn frá drotni, Drottinn hersveitanna, í Sjóna-dalnum. Múrar voru brotnir niður, óhljóðin heyrðust til fjalla.

Elam tók örvamælinn, ásamt mönnuðum vögnum og hestum, og Kír tók hlífar af skjöldum.

Þínir fegurstu dalir fyltust hervögnum, og riddarar tóku sér stöðu fyrir borgarhliðunum.

Og hann tók skýluna burt frá Júda. Á þeim degi skygndist þú um eftir herbúnaðinum í skógarhúsinu,

og þér sáuð að veggskörðin voru mörg í Davíðsborg, og þér söfnuðuð vatninu í neðri tjörninni;

og þér tölduð húsin í Jerúsalem, og þér rifuð húsin, til þess að treysta með múrvegginn;

og þér bjugguð til vatnstæðu milli múrveggjanna tveggja fyrir vatnið úr gömlu tjörninni, — en að honum, sem þessu veldur, gáfuð þér eigi gætur, og til hans, sem hagaði þessu svo fyrir löngu, lituð þér ekki.

Á þeim degi kallaði Drottinn, Drottinn hersveitanna, menn til að gráta og kveina, til að reyta hár sitt og gyrðast hærusekk;

En sjá, hér er gleði og glaumur, naut drepin, sauðum slátrað, kjöt etið, vín drukkið: etum og drekkum, því á morgun deyjum vér!

Og opinberun Drottins hersveitanna hljómar í eyrum mínum: Sannlega skuluð þér eigi fá afplánað þessa misgjörð áður en þér deyið, segir Drottinn, Drottinn hersveitanna.

Svo mælti Drottinn, Drottinn hersveitanna: Far þú og gakk til þessa dróttseta, hans Sébna, er forstöðu veitir húsi konungsins:

Hvað hefir þú hér að gjöra? og hvern átt þú hér, er þú lætur höggva þér hér gröf? þú sem höggva lætur gröf handa þér á háum stað og lætur grafa handa þér legstað í berginu.

Sjá, Drottinn varpar þér burt, maður!. þrífur fast í þig,

vefur þig saman í böggul og þeytir þér sem sopp út á víðan vang. Þar skalt þú deyja og þar skulu þínir dýrlegu vagnar vera, þú sem ert húsi Drottins þíns til svívirðu!

Eg hrindi þér úr stöðu þinni, og úr embætti þínu skal þér steypt verða.

En á þeim degi mun eg kalla þjón minn Eljakím Hilkíason.

Eg færi hann í kyrtil þinn og gyrði hann belti þínu og fæ honum í hendur vald þitt; hann skal verða faðir Jerúsalem-búa og Júdaniðja.

Og lykilinn að húsi Davíðs legg eg á herðar honum; þegar hann lýkur upp, skal enginn læsa; þegar hann læsir, skal enginn upp ljúka.

Eg rek hann eins og nagla á haldgóðan stað, og hann skal verða veglegt hásæti fyrir hús föður síns.

En hengi allur þungi föðurættar Í hans sig á hann með niðjum sínum og skyldmennum, öll smákerin, eigi aðeins skálarnar, heldur og öll leirkerin,

þá mun naglinn, — það eru orð Drottins hersveitanna — sem rekinn var á haldgóðum stað, jafnskjótt láta undan, brotna og detta niður, og byrðin, sem á honum hékk, skal sundur molast, því að Drottinn hefir talað það.