Gamla testamentiðSpámennirnir
Árið sem Tartan kom til Asdód, sendur af Sargon Assýríukonungi — og hann herjaði á Asdód og vann hana —,
í það mund talaði Drottinn fyrir munn Jesaja Amozsonar á þessa leið: Far og leys hærusekkinn af lendum þér og drag skó þína af fótum þér. Og hann gjörði svo og gekk fáklæddur og berfættur.
Og Drottinn mælti: Eins og Jesaja þjónn minn hefir gengið fáklæddur og berfættur í þrjú ár sem tákn og fyrirburður um Egiptaland og Bláland,
svo skal Assýríu-konungur færa burt bandingjana frá Egiptalandi og útlagana frá Blálandi, bæði unga og gamla, fáklædda og berfætta, með bera bakhlutina, Egiptum til smánar.
Þá munu þeir skelfast og skammast sín vegna Blálands, er þeir reiddu sig á, og Egiptalands, er þeir stærðu sig af.
Og þeir sem búa á þessari strönd, munu segja á þeim degi: Svo er þá komið fyrir þeim, er vér reiddum oss á og flýðum til í von um hjálp, til þess að frelsast undan Assýríu-konungi! Hversu megum vér þá sjálfir komast undan?