Jeremíabók 7Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 7

rðið, sem kom til Jeremía frá Drottni, svo hljóðandi:

Nem staðar við hlið musteris Drottins og boða þar þessi orð og seg: Heyrið orð Drottins, allir Júdamenn, þér sem gangið inn um þetta hlið, til þess að falla fram fyrir Drottni.

Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Bætið breytni yðar og gjörðir; þá mun eg láta yður búa á þessum stað.

Reiðið yður ekki á lygatal, er menn segja: Þetta er musteri Drottins, musteri Drottins, musteri Drottins.

En ef þér bætið breytni yðar og gjörðir alvarlega, ef þér iðkið réttlæti í þrætum manna á milli,

undirokið ekki útlendinga, munaðarleysingja og ekkjur, og úthellið ekki saklausu blóði á þessum stað, og eltið ekki aðra guði — yður til tjóns,

þá vil eg láta yður búa á þessum stað, í landinu, sem eg gaf feðrum yðar, frá eilífð til eilífðar.

Sjá, þér reiðið yður á lygaræður, sem ekki eru til nokkurs gagns.

Er ekki svo: stela, myrða, drýgja hór, sverja meinsæri, færa Baal reykelsisfórnir og ella aðra guði, er þér ekki þekkið?

Og síðan komið þér og gangið fram fyrir mig í þessu húsi, sem kent er við nafn mitt, og segið: Oss er borgið! til þess síðan af nýju að fremja allar þessar svívirðingar.

Er þá hús þetta, sem kent er við nafn mitt, orðið að ræningjabæli í augum yðar? Já, eg lít svo á — segir Drottinn.

Farið til bústaðar míns í Síló, þar sem eg forðum daga lét nafn mitt búa, og sjáið, hvernig eg hefi farið með hann fyrir sakir ilsku lýðs míns Ísraels.

Og þar eð þér nú hafið framið öll þessi verk — segir Drottinn — og eigi hlýtt, þótt eg hafi talað til yðar seint og snemma, og eigi svarað, ótt eg hafi kallað á yður,

þá ætla eg að fara með húsið, sem kent er við nafn mitt og þér treystið á, og staðinn, sem eg hefi gefið yður og feðrum yðar, eins og eg fór með Síló,

og útskúfa yður frá augliti mínu, eins og eg útskúfaði bræðrum yðar, öllum niðjum Efraíms.

En þú skalt ekki biðja fyrir þessum lýð og ekki hefja þeirra vegna grátbeiðni né fyrirbón, og legg ekki að mér, því að eg heyri þig ekki.

Sér þú ekki hvað þeir hafast að í Júdaborgum og á strætum Jerúsalem?

Börnin tína saman eldivið og feðurnir kveikja eldinn, en konurnar hnoða deig, til þess að gjöra af fórnarkökur handa himnadrotningunni og færa öðrum guðum dreypifórnir, til þess að skaprauna mér.

En skaprauna þeir mér — segir Drottinn —, hvort ekki miklu fremur sjálfum sér, til þess að þeir verði sér herfilega til skammar?

Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Reiði minni og heift mun úthelt verða yfir þennan stað, yfir menn og skepnur, yfir tré merkurinnar og yfir ávexti akurlendisins, — og hún skal brenna og eigi slokna.

Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Bætið brennifórnum yðar við sláturfórnir yðar og etið kjöt.

Því að eg hefi ekkert talað til feðra yðar né boðið þeim nokkuð, þá er eg leiddi þá burt af Egiptalandi, um brennifórnir og sláturfórnir,

en þetta hefi eg boðið þeim: Hlýðið minni raustu, þá skal eg vera yðar Guð og þér skuluð vera mín þjóð, og gangið jafnan á þeim vegi, sem eg býð yður, til þess. að yður vegni vel.

En þeir heyrðu ekki og lögðu ekki við eyrun, en fóru eftir vélráðum síns illa hjarta og sneru við mér bakinu, en ekki andlitinu.

S Frá þeim degi, er feður yðar fóru burt af Egiptalandi, og fram á þennan dag hefi eg stöðugt dag eftir dag sent þjóna mína, spámennina, til yðax-,

en þeir heyrðu mig ekki og lögðu ekki við eyrun, heldur gjörðust harðsvíraðir og breyttu enn ver en feður þeirra.

Og Þótt þú talir öll þessi orð til þeirra, munu þeir ekki hlýða á þig, og þt þú kallir bl þeirra, munu þeir ekki svara þér.

Seg því við þá: Þetta er þjóðin, sem eigi hlýðir raustu Drottins, Guðs síns, og engri umvöndun tekur; horfin er trúfestin, já, upprætt úr munni þeirra.

Sker af þér höfuðprýði þína og varpa henni frá þér og hef upp harmakvein á skóglausu hæðunum; því að Drottinn hefir hafnað og útskúfað þeirri kynslóð, sem hann reiddist.

Því að Júdamenn hafa gjört það, sem ilt er í mínum augum — segir Drottinn —, þeir hafa reist upp viðurstygðir sínar í húsi því, sem kent er við nafn mitt, til þess að saurga það,

og bygt Tófet-fórnarhæðir í Hinnomssonar-dal, til þess að brenna sonu sína og dætur í eldi, sem eg hefi ekki boðið og mér hefir ekki í hug komið.

Sjá, fyrir því munu þeir dagar koma — segir Drottinn —, að eigi mun framar verða talað um tófet« og »Hinnomssonar-dal«, heldur um »Drápsdal«, og menn munu jarða í Tófet vegna rúmleysis,

og lík þessa lýðs munu verða æti fyrir fugla himinsins og dýr jarðarinnar, og enginn mun fæla þau burt.

Þá mun eg láta öll ánægju- og gleðihljóð, öll fagnaðarlæti brúðguma og brúðar hverfa burt úr Júdaborgum og af strætum Jerúsalem, því að landið skal verða auðn.