Gamla testamentiðSpámennirnir
Orðið, sem kom til Jeremía frá Drottni, svo hljóðandi:
upp og gakk ofan í hús leirkerasmiðsins; þar vil eg láta þig heyra orð mín!
Og eg gekk ofan í hús leirkerasmiðsins og var hann að verki sínu við kringlurnar;
og mistækist kerið, sem hann var að búa til, þá bjó hann aftur til úr því annað ker, eins og leirkerasmiðinum leizt að gjöra.
Þá kom orð Drottins til mín, svo hljóðandi:
Get eg ekki farið með yður, eins og þessi leirkerasmiður, þú Ísraels hús — segir Drottinn—; sjá, eins og leirinn í hendi leirkerasmiðsins, svo eruð þér í minni hendi, Ísraels hús.
hóta eg þjóð og konungsríki að uppræta það, umturna því og eyða því;
en snúi þjóðin, er eg hefi hótað þessu, sér frá vonzku sinni, þá iðrar mig hins illa, er eg hugði að gjöra henni.
En stundum heiti eg þjóð og konungsríki að byggja það og gróðursetja það;
en ef það gjörir það, sem út er í mínum augum, svo að það hlýðir ekki minni raustu, þá iðrar mig þess góða, er €Og hafði heitið að veita því.
Og seg þú nú við Júdamenn og Jerúsalembúa á þessa leið: Svo segir Drottinn: Sjá, eg bý yður ógæfu og hrugga ráð gegn yður. Snúið yður hver og einn frá sinni vondu breytni og temjið yður góða breytni og góð verk!
En þeir munu segja: Það er til einskis! vér förum eftir vorum hugsunum og breytum hver og einn eftir þverúð síns vonda hjarta.
Fyrir því segir Drottinn svo: Spyrjið meðal heiðingjanna, hvort nokkur hafi heyrt slíkt? Mjög hryllilega hlut! hefir mærin Ísrael í frammi hafi.
Hvort hverfur þá af gnæfandi klettinum snjór Líbanons? Eða sígur þá uppvellandi vatnið niður, hið svala, niðandi?
Því að þjóð mín hefir gleymt mér, fánýtum goðunum færa þeir reykelsisfórnir; og þeir hafa leitt þá í hrösun á vegum þeirra, gömlu götunum, svo að þeir ganga stigu, ólagðan veg,
svo að þeir gjöra land sitt að skelfingu, að eilífu háði, svo að hver sá, er þar fer um, skelfist og hristir höfuðið.
Eins og fyrir austanvindi mun eg tvístra þeim fyrir óvinunum, eg mun sýna þeim bakið, en ekki andlitið á þeirra glötunardegi.
Þá sögðu þeir: Komið, bruggum ráð gegn Jeremia; því að eigi mun prestana skorta kenning, spekingana ráð, né spámennina opinberun, -— komið, vér skulum drepa hann með tungunni og engan gaum gefa orðum hans.
Gef mér því gaum, Drottinn, og heyr tal andstæðinga minna.
Á þá að launa gott með illu, þar sem þeir hafa grafið mér gröf? Minstu þess, hversu eg hefi staðið frammi fyrir þér, til þess að tala máli þeirra, til þess að snúa þinni heiftarreiði frá þeim.
Ofursel því sonu þeirra hungrinu og fá þá sverðinu á vald, svo að konur þeirra verði barnlausar og ekkjur, og menn þeirra farist af drepsótt og æskumenn þeirra falli fyrir sverði í bardaga.
Lát neyðarkvein heyrast úr húsum þeirra, þegar þú lætur morðflokka skyndilega yfir þá koma; því að þeir hafa grafið gröf, til að veiða mig í, og lagt snörur fyrir fætur mína.
En þú, Drottinn, þekkir öll fjörráð þeirra gegn mér; fyrirgef eigi misgjörð þeirra og afmá ekki synd þeirra fyrir augliti þínu. Lát þá steypast fyrir þér; framkvæm það á þeim, þegar reiði þín brýzt út.