Jakobsbréfið 5Krans-útgáfa

Jakobsbréfið 5

Heyrið nú, þér auðmenn, grátið og kveinið yfir þeim eymdum, sem yfir yður munu koma.

Auður yðar er orðinn fúinn og klæði yðar eru orðin möletin,

gull yðar og silfur er orðið ryðbrunnið, og ryðið á því mun verða yður til vitnis og eta hold yðar eins og eldur; þér hafið fjársjóðum safnað á síðustu dögunum.

Sjá, laun verkamannanna, sem hafa slegið lönd yðar, þau er þér hafið haft af þeim, hrópa, og köll kornskurðarmannanna eru komin til eyrna Drottins hersveitanna.

Þér hafið lifað í sællífi á jörðunni og í óhófi; þér hafið alið hjörtu yðar á slátrunardegi.

Þér hafið sakfelt, þér hafið drepið hinn réttláta; hann stendur ekki í gegn yður.

Þreyið því, bræður, þangað til Drottinn kemur. Sjá, akuryrkjumaðurinn bíður eftir hinum dýrmæta ávexti jarðarinnar og þreyir eftir honum, þangað til hann hefir fengið haustregn og vorregn.

Þreyið og þér, styrkið hjörtu yðar, því að tilkoma Drottins er í nánd.

Kvartið ekki hver yfir öðrum, bræður, til þess að þér verðið ekki dæmdir; sjá, dómarinn stendur fyrir dyrunum.

Bræður, takið spámennina, sem talað hafa í nafni Drottins, til fyrirmyndar í að líða ilt og í þolinmæði.

Sjá, vér teljum þá sæla, sem þolgóðir hafa verið; þér hafið heyrt um þolgæði Jobs og vitið endalokin, sem Drottinn gjörði, því að Drottinn er mjög miskunnsamur og líknsamur.

En umfram alt, bræður mínir, sverjið ekki, hvorki við himininn né við jörðina, né nokkurn annan eið, en yðar já sé já, yðar nei sé nei, til þess að þér fallið ekki undir dóm.

Líði nokkurum illa yðar á meðal, þá biðji hann; liggi vel á einhverjum, þá syngi hann lofsöng.

Sé einhver sjúkur yðar á meðal, þá kalli hann til sín öldunga kirkjunnar, og þeir skulu smyrja hann með olíu í nafni Drottins og biðjast fyrir yfir honum;

og trúarbænin mun gjöra hinn sjúka heilan og Drottinn mun reisa hann á fætur, og þær syndir, sem hann kann að hafa drýgt, munu honum verða fyrirgefnar.

Játið því hver fyrir öðrum syndir yðar og biðjið hver fyrir öðrum, til þess að þér verðið heilbrigðir. Kröftug bæn réttláts manns megnar mikið.

Elía var maður sama eðlis og vér, og hann bað þess heitt, að ekki skyldi rigna, og það rigndi ekki yfir landið í þrjú ár og sex mánuði;

og hann bað aftur, og himininn gaf regn og jörðin bar sinn ávöxt.

Bræður mínir, ef einhver meðal yðar villist frá sannleikanum, og einhver snýr honum,

þá viti hann, að hver, sem snýr syndara frá villu vegar hans, mun frelsa sálu frá dauða og hylja fjölda synda.