Hóseabók 5Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Hóseabók 5

Heyrið þetta, þér prestar, takið eftir, þér Ísraelsmenn, og hlýð þú á, konungs hús, því til yðar tekur dómurinn: Því að þér eruð orðnir snara fyrir Mizpa og útþanið net á Tabor

og djúp gröf í Sittím. En eg skal refsa þeim öllum.

Eg þekki Efraím, og Ísrael getur ekki dulist fyrir mér; já, nú hefir þú drýgt hór, Efraím, Ísrael saurgað sig.

Verk þeirra leyfa þeim eigi að snúa aftur til Guðs þeirra, því að hórdómsandi býr í þeim, og Drottinn þekkja þeir ekki.

En Ísraels tign mun vitna í gegn þeim, og Ísrael og Efraím munu steypast vegna misgjörðar þeirra; Júda mun og steypast með þeim.

Þegar þeir þá koma með sauði sína og naut, til þess að leita Drottins, þá munu þeir ekki finna hann; hann hefir sagt sig lausan við þá.

Drottinn hafa þeir verið ótrúir, því að þeir hafa getið óskilgetin börn. Nú skal tunglkoman eyða þeim og ekrum þeirra.

Þeytið lúðurinn í Gíbeu og básúnuna í Rama! Æpið heróp í Betaven! Óvinirnir á hælum þér, Benjamín!

Efraím skal verða að auðn á degi hirtingarinnar. Ísraels ættkvíslum boða eg áreiðanlega hluti.

Höfðingjar Júda eru líkir þeim, sem færa landamerki úr stað; yfir þá vil eg úthella reiði minni eins og vatni.

Í Efraím er rétturinn ofríki borinn og fótum troðinn, því að honum þóknaðist að elta fánýt goð.

Því varð eg sem mölur Efraím og sem nagandi ormur Júda húsi.

En er Efraím sá sjúkdóm sinn og Júda mein sitt, þá leitaði Efraím til Assúrs og sendi til Þrasvalds konungs. En hann megnar ekki að lækna yður, né að græða mein yðar;

því að eg mun verða eins og dýrið óarga fyrir Efraím og eins og ungt ljón Júda húsi. Eg, eg mun sundurrífa og fara burt, bera burt bráðina, án þess að nokkur bjargi.

Eg mun fara burt og hverfa aftur á minn stað, unz þeir kannast við afbrot sín og leita míns auglitis; þegar að þeim þrengir, munu þeir snúa sér til mín.