Gamla testamentiðSpámennirnir
Og Drottinn sagði við mig: Far enn og elska konu, sem elskar annan mann og haft hefir fram hjá, eins og Drottinn elskar Ísraelsmenn, þótt þeir hneigist að öðrum guðum og þyki rúsínukökur góðar.
Þá keypti eg mér hana fyrir fimtán sikla silfurs og hálfan annan kómer byggs
og sagði við hana: Langan tíma skalt þú sitja ein, án þess að drýgja hór og án þess að heyra nokkurum manni til; svo skal eg og vera gagnvart þér.
Því að langan tíma skulu Ísraelsmenn sitja einir án konungs og án höfðingja, án fórnar og án merkissteins, án hökullíkneskis og húsguða.
Eftir það munu Ísraelsmenn snúa sér og leita Drottins, Guðs síns, og Davíðs, konungs síns, og þeir munu á hinum síðustu dögum flýja til Drottins og til hans blessunar.