Hóseabók 14Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Hóseabók 14

Samaría fær að gjalda þess, að hún hefir sett sig upp á móti — Guði sínum; fyrir sverði skulu þeir falla, ungbörnum þeirra skal slegið verða niður við og þungaðar konur þeirra ristar verða á kvið.

Snú þú við, Ísrael, til Drottins, Guðs þíns; því að þú steyptist fyrir misgjörð þína.

Takið orð með yður og hverfið aftur til Drottins. Segið við hann: Fyrirgef með öllu misgjörð vora og ver góður, og vér skulum greiða þér ávöxt vara vorra.

Assúr skal eigi framar hjálpa oss, vér viljum eigi ríða hestum og eigi framar segja »Guð vor« við verk handa vorra; því að hjá þér hlýtur hinn munaðarlausi líkn!

Eg vil lækna fráhvarf þeirra, elska þá af frjálsum vilja, því að reiði mín hefir snúið sér frá þeim.

Eg vil verða Ísrael sem döggin; hann skal blómgast sem lilja og skjóta rótum sem Líbanonskógur.

Frjóangar hans skulu breiðast út og toppskrúðið verða sem á olíutré og ilmur hans verða sem Líbanonsilmur.

Þeir, sem búa í skugga hans, skulu aftur rækta korn og blómgast eins og vínviður; hann skal verða eins nafntogaður og vínið frá Líbanon.

Hvað á Efraím framar saman við skurðgoðin að sælda? Eg hefi bænheyrt hann; eg lít til hans; eg er sem laufgrænt kýprestré. Það mun í ljós koma, að ávextir þínir eru frá mér komnir.

Hver er svo vitur, að hann skilji þetta, svo hygginn, að hann sjái það? Já, vegir Drottinn eru réttir. Hinir réttlátu ganga þá öruggir, en hinir ranglátu hrasa á þeim.